Fræðsluráð

12. fundur 18. maí 2018 kl. 09:30 - 11:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Þórhallur Harðarson
  • Guðmundur H Sigurðarson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Dagný Þóra Baldursdóttir L-lista boðaði forföll og varamaður komst ekki til fundarins.
Sigurður Freyr Sigurðarson fulltrúi grunnskólakennara boðaði forföll og varamaður komst ekki til fundarins.

1.Rekstur fræðslumála 2018

Málsnúmer 2018030030Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrarsviðs gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu þrjá mánuði ársins.

2.Aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum

Málsnúmer 2017110400Vakta málsnúmer

Endurskoðuð aðgerðaráætlun fyrir árin 2018-2020 gegn kynbundnu ofbeldi var rædd. Velferðarráð ber ábyrgð á aðgerðaráætluninni, framkvæmd hennar og eftirfylgd.

3.Viðurkenningar fræðsluráðs 2018

Málsnúmer 2016010018Vakta málsnúmer

Málinu frestað.

4.Endurskoðun skólastefnu Akureyrarkaupstaðar 2018

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir stöðu vinnu við endurskoðun á skólastefnu Akureyrarkaupstaðar.

5.Fræðslusvið - stjórnkerfisbreytingar

Málsnúmer 2017030171Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir stöðu stjórnkerfisbreytinga á fræðsluskrifstofu.

6.Handbók fræðsluráðs 2014 - 2018

Málsnúmer 2014060220Vakta málsnúmer

Handbók fræðsluráðs var lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að uppfæra handbókina.

7.Íslensk málstefna - notum íslensku til alls

Málsnúmer 2018050165Vakta málsnúmer

Íslensk málstefna lögð fram til umræðu.
Fræðsluráð undirstrikar mikilvægi þess að vandað íslenskt mál sé notað í skólastarfi sem og í allri opinberri stjórnsýslu. Nota skal íslensku til alls.

8.Áskorun frá stjórnendum grunnskóla Akureyrarkaupstaðar

Málsnúmer 2018050164Vakta málsnúmer

Áskorun frá stjórnendum grunnskóla Akureyrarkaupstaðar barst fræðsluráði þar sem óskað er eftir að gerður verði vandaður samanburður á útgjöldum stærstu sveitarfélaga landsins til fræðslumála.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og leggur til að mönnun í skólum verði skoðuð sérstaklega samhliða endurskoðun á skólastefnu Akureyrarkaupstaðar.

Sviðsstjóra er falið að svara erindinu.

9.Grunnskólar Akureyrarbæjar - gjaldfrjáls námsgögn

Málsnúmer 2017060154Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrasviðs gerði grein fyrir niðurstöðu útboðs vegna gjaldfrjálsra námsgagna.

Fundi slitið - kl. 11:30.