Félagsmálaráð

1191. fundur 17. september 2014 kl. 14:00 - 17:25 Heilsugæslustöðin - fundarsalur 4. hæð
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Karl Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagserindi 2014 - áfrýjanir

Málsnúmer 2014010041Vakta málsnúmer

Selma Heimisdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjárhagsaðstoð 2014

Málsnúmer 2014010040Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu átta mánuði ársins 2014.

3.Félagslegar leiguíbúðir úttekt skýrsla 14.12.2012

Málsnúmer 2012121194Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá Fasteignum Akureyrarbæjar varðandi þörf fyrir félagslegt húsnæði. Málið var á dagskrá ráðsins 3. september sl.

Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri, Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri, Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar fóru yfir minnisblað dagsett 17. september 2014 um þörf á félagslegu leiguhúsnæði næstu fimm árin.

Félagsmálaráð samþykktir minnisblaðið með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Framkvæmdastjórum og formanni er falið að senda minnisblaðið til Fasteigna Akureyrarbæjar sem svar við fyrirspurn þeirra dagsettri 22. ágúst sl.

4.Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2014

Málsnúmer 2014030045Vakta málsnúmer

Rædd málefni tveggja heimilislausra einstaklinga. Fyrir liggja bréf frá Guðrúnu Pálmadóttur réttindagæslumanni fatlaðs fólks, dagsett 15. og 16. september 2014 og minnisblað starfsmannanna Önnu Maritar Níelsdóttur verkefnastjóra og Karólínu Gunnarsdóttur þjónustustjóra á fjölskyldudeild dagsett 17. september 2014.

Bókanir vegna einstaklingsmála eru færðar í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

5.Framkvæmd reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2013040005Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla, sem unnin var fyrir Mennta- og menningarmálaráðuneytið, með niðurstöðum úttektar á sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum, þar á meðal Akureyrarbæ. Einnig er lögð fram tillaga að tímasettri áætlun um hvernig brugðist verður við þeim tillögum og ábendingum sem fram koma í skýrslunni.

Félagsmálaráð samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til frekari vinnu við gerð starfsáætlunar 2015.

6.Stefnumótun og starfsáætlun félagsmálaráðs 2014-2018

Málsnúmer 2014090101Vakta málsnúmer

Rætt um áherslur félagsmálaráðs í starfsáætlun fyrir kjörtímabilið. Fyrir liggur starfsáætlun síðasta kjörtímabils og langtímaáætlun.

Félagsmálaráð áformar að nýta næstu fundi til að vinna að stefnumótun og starfsáætlun í samræmi við umræður á fundinum.

7.Heilsugæslustöðin á Akureyri - samningar við ríkið

Málsnúmer 2014020032Vakta málsnúmer

Karl Guðmundsson framkvæmdarstjóri HAK, Lára Ólafsdóttir skrifstofustjóri, Inga Eydal framkvæmdastjóri heimahjúkrunar og Jón Torfi Halldórsson yfirlæknir mættu og gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi yfirfærslu stöðvarinnar frá Akureyrarbæ til ríkisins.

8.Fjölskyldudeild - breytingar á skrifstofu

Málsnúmer 2014090164Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Guðrúnar Ólafíu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar dagsett 5. september 2014 um breytingar á skrifstofu fjölskyldudeildar.
Félagsmálaráð samþykkir breytingarnar.

Fundi slitið - kl. 17:25.