Bæjarráð

3332. fundur 20. september 2012 kl. 09:00 - 12:12 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Njáll Trausti Friðbertsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Nefndarlaun - breyting á samþykkt

Málsnúmer 2012090158Vakta málsnúmer

Umræður um breytingu á nefndarlaunum.

2.Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2012/2013

Málsnúmer 2012090138Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu dags. 10. september 2012 þar sem fram kemur auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013. Umsóknarfrestur er til 28. september 2012.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsókn vegna Hríseyjar og Grímseyjar.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012020029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 799. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 7. september 2012.

4.Vaðlaheiðargöng - fjármögnun

Málsnúmer 2011110045Vakta málsnúmer

Rætt um fjármögnun Vaðlaheiðarganga.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara með umboð Akureyrarbæjar á fyrirhuguðum hluthafafundi Greiðrar leiðar ehf.

5.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013

Málsnúmer 2012060047Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista, Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri viku af fundi kl. 11:55.

6.Önnur mál

Málsnúmer 2012010085Vakta málsnúmer

Oddur Helgi Halldórsson L-lista fór yfir stöðu mála varðandi Grímsstaði á Fjöllum.
Logi Már Einarsson S-lista vék af fundi kl. 12:08.

Fundi slitið - kl. 12:12.