Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2012/2013

Málsnúmer 2012090138

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3332. fundur - 20.09.2012

Lagt fram bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu dags. 10. september 2012 þar sem fram kemur auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2012/2013. Umsóknarfrestur er til 28. september 2012.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsókn vegna Hríseyjar og Grímseyjar.

Bæjarráð - 3337. fundur - 25.10.2012

Lagt fram til kynningar bréf dags. 19. október 2012 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013 148 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 16 þorskígildistonn vegna Grímseyjar.
Í bréfinu er einnig vakin athygli á því að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 9. nóvember 2012.