Bæjarráð

3301. fundur 15. desember 2011 kl. 09:00 - 10:32 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Kaup eigna af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 2011120034Vakta málsnúmer

Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar mættu á fundinn undir þessum lið og kynntu möguleg kaup Akureyrarbæjar á nokkrum eignum af Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir í samræmi við framlögð gögn að kaupa eignir að Dvergagili 3, Snægili 1, Hafnarstræti 16 og Geislatúni 1 og að ganga til samninga varðandi Skógarlund 1.

Kaupverðið verður fjármagnað með fasteignaláni frá Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

2.Sveitarfélagið Skagafjörður - ályktun vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra

Málsnúmer 2011120021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 2. desember 2011 frá sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar þar sem vakin er athygli á ályktun sem samþykkt var á 274. fundi sveitarstjórnarinnar 30. nóvember 2011 vegna tillagna frá starfshópi sjávarútvegsráðherra.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2011

Málsnúmer 2011020014Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 791. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 25. nóvember 2011.
Fylgiskjöl:

4.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 2. desember 2011.

5.Rekstur - staða mála - embættismenn

Málsnúmer 2011050032Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar minnisblöð frá embættismönnum varðandi frávik í rekstri.

6.Áheyrnarfulltrúar í nefndum

Málsnúmer 2011120053Vakta málsnúmer

Samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum eiga þau framboð sem fulltrúa eiga í bæjarstjórn rétt á að skipa áheyrnarfulltrúa í þær nefndir sem viðkomandi framboð á ekki fulltrúa í.
Umræður um hvort þessir áheyrnarfulltrúar fái greidd nefndarlaun fyrir setu á fundum.

Fundi slitið - kl. 10:32.