Bæjarráð

3286. fundur 08. september 2011 kl. 09:00 - 12:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn

Málsnúmer 2011050032Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu, Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar og Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

Bæjarráð þakkar þeim Þórgný, Guðríði og Helga Má yfirferðina.

2.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2011

Málsnúmer 2011050045Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til júlí 2011.

3.Viðtalstímar bæjarfulltrúar október 2011- maí 2012

Málsnúmer 2011080111Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áætlun um viðtalstíma bæjarfulltrúa frá október 2011 til maí 2012.
Áætlunin verður birt á heimasíðu Akureyrarbæjar, slóðin er http://www.akureyri.is/stjornkerfid/baejarstjorn/

4.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 2. september 2011.

5.Sörlaskjól 7 - gatnagerðargjöld

Málsnúmer 2009110061Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dags. 18. ágúst 2011 frá Hólmgeiri Valdemarssyni þar sem hann óskar eftir að endurskoðuð verði gatnagerðargjöld vegna Sörlaskjóls 7 með tilliti til dýptar lóðar.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

6.Knattspyrnufélag Akureyrar - gervigras

Málsnúmer 2011060093Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við gerð gervigrasvallar hjá KA, en bæjarráð óskaði á fundi sínum þann 7. júlí sl. eftir framkvæmda- og kostnaðaráætlun vegna verksins.

Afgreiðslu frestað.

7.Knattspyrnufélag Akureyrar - kalskemmdir

Málsnúmer 2011060093Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 1. september 2011:
9. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 7. júlí 2011:
Erindi dags. 22. júní 2011 frá Hrefnu G. Torfadóttur f.h. Knattspyrnufélags Akureyrar varðandi kalskemmdir á knattspyrnuvöllum félagsins. Óskað er eftir því að Akureyrarbær komi til móts við félagið vegna þessara auknu fjárútláta og leggi félaginu til sem nemur 950.000 krónum, sem er viðbótarkostnaður vegna þess mikla tjóns sem félagið hefur orðið fyrir.
Bæjarráð vísar ósk KA um styrk að upphæð kr. 950.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins til umsagnar íþróttaráðs.
Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.
Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.
Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Knattspyrnufélagi Akureyrar verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

Bæjarráð samþykkir að styrkja KA um kr. 500.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins og vísar kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

8.Golfklúbbur Akureyrar - kalskemmdir

Málsnúmer 2011080101Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 1. september 2011:
Erindi dags. 26. ágúst 2011 frá Halldóri M. Rafnssyni f.h. Golfklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi vegna mikilla kalskemmda á velli klúbbsins.
Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.
Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.
Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Golfklúbbi Akureyrar verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

Bæjarráð samþykkir að styrkja Golfklúbb Akureyrar um kr. 2 milljónir vegna kalskemmda á velli klúbbsins og vísar kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

9.Golfklúbbur Akureyrar - uppbyggingarsamningur

Málsnúmer 2007030220Vakta málsnúmer

Umræður um gildandi samning við Golfklúbb Akureyrar.

Fram kom tillaga frá Sigurði Guðmundssyni A-lista um að vísa málinu til bæjarstjórnar og var hún samþykkt.

Sigurður Guðmundsson A-lista og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri viku af fundi kl. 11:35.

10.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2012

Málsnúmer 2011070038Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Fundi slitið - kl. 12:05.