Golfklúbbur Akureyrar - kalskemmdir

Málsnúmer 2011080101

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3286. fundur - 08.09.2011

4. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 1. september 2011:
Erindi dags. 26. ágúst 2011 frá Halldóri M. Rafnssyni f.h. Golfklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi vegna mikilla kalskemmda á velli klúbbsins.
Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.
Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.
Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Golfklúbbi Akureyrar verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

Bæjarráð samþykkir að styrkja Golfklúbb Akureyrar um kr. 2 milljónir vegna kalskemmda á velli klúbbsins og vísar kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.