Knattspyrnufélag Akureyrar - kalskemmdir og gervigras

Málsnúmer 2011060093

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3278. fundur - 07.07.2011

Erindi dags. 22. júní 2011 frá Hrefnu G. Torfadóttur f.h. Knattspyrnufélags Akureyrar varðandi kalskemmdir á knattspyrnuvöllum félagsins. Óskað er eftir því að Akureyrarbær komi til móts við félagið vegna þessara auknu fjárútláta og leggi félaginu til sem nemur 950.000 krónum, sem er viðbótarkostnaður vegna þess mikla tjóns sem félagið hefur orðið fyrir. Jafnframt er óskað eftir því að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við væntanlegan gervigrasvöll á félagssvæði KA um eitt ár þannig að ráðist verði í jarðvegsframkvæmdir á svæðinu strax í haust og völlurinn lagður gervigrasi vorið 2012.

Bæjarráð vísar ósk KA um styrk að upphæð kr. 950.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins til umsagnar íþróttaráðs.

Varðandi ósks KA um að flýta framkvæmdum við gervigrasvöll óskar bæjarráð eftir framkvæmda- og kostnaðaráætlun vegna verksins.

Bæjarráð - 3286. fundur - 08.09.2011

Lögð fram til kynningar kostnaðaráætlun vegna framkvæmda við gerð gervigrasvallar hjá KA, en bæjarráð óskaði á fundi sínum þann 7. júlí sl. eftir framkvæmda- og kostnaðaráætlun vegna verksins.

Afgreiðslu frestað.

Bæjarráð - 3286. fundur - 08.09.2011

3. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 1. september 2011:
9. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 7. júlí 2011:
Erindi dags. 22. júní 2011 frá Hrefnu G. Torfadóttur f.h. Knattspyrnufélags Akureyrar varðandi kalskemmdir á knattspyrnuvöllum félagsins. Óskað er eftir því að Akureyrarbær komi til móts við félagið vegna þessara auknu fjárútláta og leggi félaginu til sem nemur 950.000 krónum, sem er viðbótarkostnaður vegna þess mikla tjóns sem félagið hefur orðið fyrir.
Bæjarráð vísar ósk KA um styrk að upphæð kr. 950.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins til umsagnar íþróttaráðs.
Íþróttaráð telur að þær veðurfarslegu aðstæður sem voru sl. vetur og vor hafi haft veruleg áhrif á þau íþróttafélög sem sjá um rekstur grassvæða í eigu Akureyrarbæjar. Ráðið telur það ljóst að án þeirra aðgerða sem gripið var til af hálfu félaganna hefði hefðbundin starfsemi þeirra raskast verulega með tilheyrandi óþægindum og tekjutapi.
Íþróttaráð leggur því mikla áherslu á, að vegna þessara óvæntu og óviðráðanlegu aðstæðna sem upp komu, að Akureyrarbær taki þátt í þeim kostnaði sem til féll vegna viðgerðanna.
Íþróttaráð óskar eftir því við bæjarráð að Knattspyrnufélagi Akureyrar verði veittur fjárhagslegur stuðningur vegna ofangreinds kostnaðar.

Bæjarráð samþykkir að styrkja KA um kr. 500.000 vegna kalskemmda á knattspyrnuvöllum félagsins og vísar kostnaði til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.

Bæjarráð - 3289. fundur - 22.09.2011

Tekið fyrir að nýju. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum þann 8. september sl. beiðni KA um að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við væntanlegan gervigrasvöll á félagssvæði KA um eitt ár þannig að vinna við jarðvegsframkvæmdir hefjist í haust og völlurinn lagður gervigrasi vorið 2012.
Fulltrúar KA þau Hrefna G. Torfadóttir formaður og Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir málið.

Bæjarráð þakkar Hrefnu og Gunnari komuna á fundinn.

Bæjarráð samþykkir að taka upp viðræður um endurskoðun á uppbyggingarsamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar frá árinu 2007.

Bæjarráð tilnefnir Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista í viðræðuhópinn og óskar eftir tilnefningu 2ja fulltrúa íþróttaráðs. Með hópnum munu starfa bæjarstjóri og framkvæmdastjóri íþróttadeildar.

Íþróttaráð - 98. fundur - 07.10.2011

2. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 22. september 2011:
Tekið fyrir að nýju. Bæjarráð frestaði afgreiðslu á fundi sínum þann 8. september sl. beiðni KA um að Akureyrarbær flýti framkvæmdum við væntanlegan gervigrasvöll á félagssvæði KA um eitt ár þannig að vinna við jarðvegsframkvæmdir hefjist í haust og völlurinn lagður gervigrasi vorið 2012.
Fulltrúar KA þau Hrefna G. Torfadóttir formaður og Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir málið.

Bæjarráð þakkar Hrefnu og Gunnari komuna á fundinn.
Bæjarráð samþykkir að taka upp viðræður um endurskoðun á uppbyggingarsamningi við Knattspyrnufélag Akureyrar frá árinu 2007.
Bæjarráð tilnefnir Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista í viðræðuhópinn og óskar eftir tilnefningu 2ja fulltrúa íþróttaráðs. Með hópnum munu starfa bæjarstjóri og framkvæmdastjóri íþróttadeildar.

Íþróttaráð skipar Nóa Björnsson L-lista og Árna Óðinsson S-lista sem fulltrúa sína í viðræðuhópinn.