Bæjarráð

3787. fundur 10. nóvember 2022 kl. 08:15 - 10:25 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Heimir Örn Árnason
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Inga Dís Sigurðardóttir M-lista sat fundinn í forföllum Hlyns Jóhannssonar.

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2023-2026

Málsnúmer 2022042596Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Skátafélagið Klakkur - húsnæði

Málsnúmer 2022081115Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 4. nóvember 2022 frá stjórn Skátafélagsins Klakks varðandi húsnæðismál félagsins í kjölfar breytinga á gildistíma leigusamnings.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að ræða við stjórn Skátafélagsins Klakks og leggur áherslu á að horft verði til þess að skammtíma- og frístundaþjónusta í Þórunnarstræti 99 fái afnot af kjallara húsnæðisins eins og velferðarráð hefur óskað eftir.

3.Vinabæir og erlend samskipti - 2022-2026

Málsnúmer 2022010136Vakta málsnúmer

Umræða um vinabæjarsamstarf við Múrmansk og aðild Akureyrarbæjar að Northern Forum.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð fordæmir innrás rússneskra stjórnvalda í Úkraínu og leggur til við bæjarstjórn að Akureyrarbær slíti vinabæjarsamstarfi við Múrmansk og jafnframt að Akureyrarbær segi sig úr samtökunum Northern Forum, sem er að stórum hluta samtök sveitarfélaga í Rússlandi.

Bæjarráð vísar tillögunum til umræðu í bæjarstjórn.

4.Byggðaþróun og atvinnuráðgjöf á landsbyggðinni

Málsnúmer 2022110159Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað landshlutasamtaka sveitarfélaga á landsbyggðinni vegna byggðaþróunar og atvinnuráðgjafar. Minnisblaðið er tilkomið vegna lausra samninga Byggðastofnunar við landshlutasamtökin annars vegar og hins vegar vegna framlagðra fjárlaga 2023.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur landshlutasamtaka sveitarfélaganna vegna byggðaþróunar og atvinnuráðgjafar á landsbyggðunum. Eigi atvinnuráðgjöf og verkefni tengd byggðaþróun að standa undir nafni er mikilvægt að hækka framlagið til Byggðastofnunar, en augljóst er að brýn þörf er á að framlögin verði aukin í takt við þróun launavísitölu og aukinnar ásóknar í ráðgjöf hjá landshlutasamtökunum.

5.Samstarfssamningur um Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra

Málsnúmer 2022110134Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að nýjum samstarfssamningi sveitarfélaga sem standa að Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra.
Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn, en leggur til eina breytingu þess efnis að heilbrigðisnefnd boði árlega til sameiginlegs fundar með þeim sveitarfélögum sem standa að heilbrigðiseftirlitinu.

6.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir 2022

Málsnúmer 2022010390Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 157. fundar hverfisráðs Hríseyjar dagsett 1. nóvember 2022.

7.Frumvarp til laga um Innheimtustofnun sveitarfélaga

Málsnúmer 2022110140Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 2. nóvember 2022 frá innviðaráðuneytinu þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til breytinga á lögum um Innheimtusofnun sveitarfélaga. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 14. nóvember 2022 í gegnum samráðsgáttina.

Fundi slitið - kl. 10:25.