Bæjarráð

3761. fundur 03. mars 2022 kl. 08:15 - 10:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista mætti í forföllum Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur.

1.Samkeppnishæfni Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018110163Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samkeppnisgreiningu sem unnin hefur verið í samvinnu við SSNE.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs, Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála, Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar og bæjarfulltrúarnir Eva Hrund Einarsdóttir, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir og Heimir Haraldsson sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja ný drög fyrir bæjarráð fyrir lok mars.

2.SSNE - Samstarf sveitarfélaga innan SSNE og N4

Málsnúmer 2022021191Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. febrúar 2022 þar sem Eyþór Björnsson f.h. SSNE kynnir tillögu að samkomulagi sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og N4 um kynningarmál. Lögð er fram tillaga að kostnaðarskiptingu.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins og felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga.

3.Úttekt Persónuverndar á notkun sveitarfélaga á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi

Málsnúmer 2022020654Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Persónuvernd dagsett 25. febrúar 2022 þar sem tilkynnt er um úttekt stofnunarinnar á notkun sex sveitarfélaga, eða grunnskóla þeirra, á skýjaþjónustu í grunnskólastarfi og er Akureyrarbær þeirra á meðal. Óskað er eftir skriflegu svari við spurningalista eigi síðar en 31. mars nk.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Leiga á Skjaldarvík - leigusamningur og leigufjárhæðir 2020 og 2021

Málsnúmer 2020100133Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu á núverandi leigusamningi um eignirnar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga 2022 - EFS

Málsnúmer 2022021051Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dagsett 21. febrúar 2022 þar sem kynnt eru áhersluatriði nefndarinnar fyrir árið 2022.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja), 349. mál

Málsnúmer 2022021235Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. febrúar 2022 frá atvinnuveganefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn sandkola og hryggleysingja), 349. mál 2022.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/152/s/0489.html

Fundi slitið - kl. 10:30.