Bæjarráð

3760. fundur 24. febrúar 2022 kl. 08:15 - 12:05 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.

1.Bæjarsjóður Akureyrarbæjar - yfirlit um rekstur 2021

Málsnúmer 2021050655Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs janúar til desember 2021.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Hlíðarfjall - rekstur

Málsnúmer 2022010809Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu mála í Hlíðarfjalli.

Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs, Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður Hlíðarfjalls og Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Eva Hrund Einarsdóttir mætti til fundar kl. 09:10.

3.Kjölur vegna tónlistarskólakennara - kjarasamningur 2022-2023

Málsnúmer 2022020590Vakta málsnúmer

Kynntur nýgerður kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjöl, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu vegna tónlistarskólakennara.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Starfsáætlun mannauðssviðs 2022

Málsnúmer 2022020270Vakta málsnúmer

Lögð fram lokadrög að starfsáætlun mannauðssviðs fyrir árið 2022. Málið var áður á dagskrá ráðsins 17. febrúar sl.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir starfsáætlun mannauðssviðs fyrir árið 2022 með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

5.Reglur Akureyrarbæjar um tímabundin viðbótarlaun (TV einingar)

Málsnúmer 2022020591Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum Akureyrarbæjar um tímabundin viðbótarlaun (TV einingar). Málið var áður á dagskrá ráðsins 17. febrúar sl.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir reglur um tímabundin viðbótarlaun með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.

6.Þjónustugátt Akureyrarbæjar - yfirlit notkunar

Málsnúmer 2022020973Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir notkun þjónustugáttar árið 2021 og þróun notkunar frá árinu 2017.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð fagnar þeim árangri sem náðst hefur í fjölgun aðgerða sem íbúar geta nú sinnt í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar. Bæjarráð hvetur stjórnendur bæjarins til að fjölga þessum aðgerðum enn frekar og spara þannig íbúum og fyrirtækjum spor og tíma.

7.Smáforrit fyrir þjónustu- og upplýsingagjöf

Málsnúmer 2019040495Vakta málsnúmer

Kynning á stöðu verkefnisins.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs, Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs og Jón Þór Kristjánsson verkefnastjóri upplýsingamiðlunar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

8.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir

Málsnúmer 2022010390Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 150. fundar hverfisráðs Hríseyjar dagsett 2. febrúar 2022.

9.Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir

Málsnúmer 2022020919Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 37. fundar hverfisráðs Grímseyjar dagsett 17. febrúar 2022. Fundurinn var jafnframt almennur íbúafundur.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við forsvarsfólk Vegagerðarinnar um málefni ferjunnar.

Fundi slitið - kl. 12:05.