Bæjarráð

3753. fundur 06. janúar 2022 kl. 08:15 - 10:29 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Kjaraviðræður

Málsnúmer 2021090834Vakta málsnúmer

Umfjöllun um yfirstandandi kjaraviðræður við hluta aðildarfélaga BHM og nýgerðan kjarasamning við KÍ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ

Málsnúmer 2022010030Vakta málsnúmer

Fjallað um reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að breyta reglunum til samræmis við stjórnsýslubreytingar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

3.Smáforrit fyrir þjónustu- og upplýsingagjöf

Málsnúmer 2019040495Vakta málsnúmer

Kynning á stöðu verkefnisins.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs, Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Heilsuvernd - samningur um leigu á tveimur íbúðum í Austurbyggð 17

Málsnúmer 2021120094Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar samningur Akureyrarbæjar við Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf. um leigu á tveimur íbúðum í raðhúsum við Austurbyggð 17.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samninginn.

5.Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2021-2022

Málsnúmer 2021121088Vakta málsnúmer

Rætt um tillögu um sérreglur vegna byggðakvóta.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og Gunnari Gíslasyni bæjarfulltrúa að ræða við hagaðila og leggja tillögur fyrir bæjarráð.

6.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2021

Málsnúmer 2021011468Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 32. fundar stjórnar SSNE dagsett 8. desember 2021.

7.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2021

Málsnúmer 2021020095Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 904. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 10. desember 2021.

Fundi slitið - kl. 10:29.