Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2021-2022

Málsnúmer 2021121088

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3753. fundur - 06.01.2022

Rætt um tillögu um sérreglur vegna byggðakvóta.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og Gunnari Gíslasyni bæjarfulltrúa að ræða við hagaðila og leggja tillögur fyrir bæjarráð.

Bæjarráð - 3754. fundur - 13.01.2022

Rætt um tillögu um sérreglur vegna byggðakvóta.

Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 6. janúar sl. og var bæjarstjóra og Gunnari Gíslasyni bæjarfulltrúa þá falið að ræða við hagaðila og leggja tillögur fyrir bæjarráð.
Bæjarráð óskar eftir að veitt verði undanþága í 6. gr. reglugerðar um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022. Óskað er eftir því að vinnsluskylda á byggðakvóta verði felld niður í sérreglum Akureyrarbæjar um úthlutun byggðakvóta í Grímsey.

Rökin fyrir beiðninni eru einkum eftirfarandi: Grímsey hefur verið skilgreind sem brothætt byggð og er hluti af samnefndu verkefni á vegum Byggðastofnunar. Í dag er engin vinnsla starfandi í Grímsey en landaður afli er umtalsverður og er hann fluttur í burtu til vinnslu í landi.

Ekki hefur verið talinn grundvöllur til að reka vinnslu í eyjunni með það magn sem þar kemur á land í dag. Í dag eru nánast allir þeir sem stunda sjósókn og landa í Grímsey búsettir í eyjunni og allar útgerðirnar sem þar landa eru með lögheimili í eyjunni. Það þjónar hagsmunum byggðarinnar í Grímsey að vinnsluskyldan verði felld niður í ljósi núverandi stöðu annars yrði engum byggðakvóta úthlutað í eyjunni.

Ekki er óskað eftir breytingum á reglugerð um úthlutun byggðakvóta í Hrísey.