Bæjarráð

3716. fundur 11. febrúar 2021 kl. 08:15 - 11:03 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Stytting vinnuviku vaktavinnufólks - umfjöllun bæjarráðs

Málsnúmer 2021011858Vakta málsnúmer

Umfjöllun um verklag og tímaramma við innleiðingu á styttingu vinnuviku vaktavinnufólks hjá Akureyrarbæ og Öldrunarheimilum Akureyrar.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Tillögur um styttingu vinnuviku dagvinnufólks

Málsnúmer 2020110775Vakta málsnúmer

Lögð fram ný tillaga að fyrirkomulagi styttingar vinnuvikunnar hjá starfsfólki í dagvinnu hjá Listasafninu á Akureyri.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir hér með niðurstöðu samtals um skipulag vinnutíma dagvinnufólks hjá Listasafninu á Akureyri sem gildir frá 13. febrúar 2021.

3.Kynningaráætlanir sviða - stjórnsýslusvið

Málsnúmer 2020010038Vakta málsnúmer

Lögð fram kynningaráætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2021 í samræmi við aðgerðaáætlun upplýsingastefnu Akureyrarbæjar.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2021 - viðauki

Málsnúmer 2020030454Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 1.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir viðauka 1 með fimm samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

5.Umsóknir um stofnframlög 2021

Málsnúmer 2021020277Vakta málsnúmer

Rætt um mögulegar umsóknir um stofnframlög vegna félagslegra íbúða.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Vistorka - beiðni um styrk til að gera hagkvæmnimat fyrir líforkuver

Málsnúmer 2021020279Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. febrúar 2021 frá SSNE og Vistorku þar sem beðið er um styrk að upphæð kr. 6.230.000 til að gera hagkvæmnimat fyrir samþætta vinnslu á lífrænum úrgangi með hátækni-efnaferlum, sem í heild er kallað Líforkuver.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð telur verkefnið mikilvægt og óskar eftir frekari upplýsingum um fjármögnun.

7.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2021

Málsnúmer 2021020307Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 4. febrúar 2021.
Bæjarráð vísar lið 1 til fræðslusviðs og lið 2 til samfélagssviðs.

8.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerðir 2020-2024

Málsnúmer 2020020443Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 139. fundar hverfisráðs Hríseyjar dagsett 4. febrúar 2021.
Bæjarráð vísar lið 1 til bæjarstjóra og aðrir liðir eru lagðir fram til kynningar. Bæjarráð fagnar frumkvæði íbúa Hríseyjar um að verða hæglætissamfélag.

9.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2020

Málsnúmer 2020020118Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 893. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 16. desember 2020.

Fundargerðina má finna á eftirfarandi vefslóð: https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/fundargerdir/

10.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2021

Málsnúmer 2021020095Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 894. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 29. janúar 2021.

Fundargerðina má finna á eftirfarandi vefslóð: https://www.samband.is/um-sambandid/skipulag/fundargerdir/
Bæjarráð tekur heilshugar undir eftirfarandi bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga:

„Stjórnin beinir því til heilbrigðisráðherra og Sjúkratrygginga Íslands að standa þannig að yfirtöku á rekstri viðkomandi hjúkrunarheimila að allri óvissu verði eytt sem allra fyrst. Gildi það sérstalega gagnvart þeim sveitarfélögum sem í hlut eiga, íbúum og ekki síst gagnvart sarfsfólkinu, sem á rétt til að njóta öryggis og fyrirsjáanleika í starfsumhverfi sínu. Stjórnin hvetur Sjúkratryggingar Íslands til að móta nú þegar skýrt og gegnsætt ferli við yfirtöku á starfsemi sem sveitarfélög vilja skila af sér vegna vanfjármögnunar af ríkisins hálfu og lagaleg ábyrgð hvílir á ríkinu að sinna.“

11.Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál

Málsnúmer 2021011848Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. janúar 2021 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga (lágmarksíbúafjöldi sveitarfélags), 378. mál 2021.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0470.html
Bæjarráð telur að veita eigi sveitarstjórnum heimild til þess að taka sjálfstæða ákvörðun um notkun fjarfundarbúnaðar á fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins og felur bæjarstjóra að senda umsögn um málið.

12.Tillaga til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál

Málsnúmer 2021011859Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. janúar 2021 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um heimild sveitarfélaga til að innheimta umhverfisgjöld, 121. mál 2021.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 11. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0122.html

13.Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál

Málsnúmer 2021020285Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 4. febrúar 2021 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur), 478. mál 2021.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0805.html

14.Frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál

Málsnúmer 2021020284Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 4. febrúar 2021 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um stefnumarkandi áætlanir á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála, 471. mál 2021.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/151/s/0794.html

Fundi slitið - kl. 11:03.