Bæjarráð

3663. fundur 28. nóvember 2019 kl. 08:15 - 09:59 Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki

Málsnúmer 2018050147Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 10.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka með 5 samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

3.Hlíðarfjall - rekstur

Málsnúmer 2019070527Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 19. nóvember sl. að rekstri Hlíðarfjalls verði breytt í B-hluta fyrirtæki. Jafnframt vísaði bæjarstjórn málinu aftur til bæjarráðs til frekari meðferðar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir með 5 samhljóða atkvæðum að skipa 3ja manna stjórn yfir Hlíðarfjall sem heyri beint undir bæjarráð. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.

4.Kjarasamningur Matvís 2019 - 2023

Málsnúmer 2019110349Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningum við iðnaðarmenn.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Nefndalaun - breytingar á reglum 2019

Málsnúmer 2019020403Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á Reglum um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ. Breytingin felst í því að greitt verður fyrir fundasetu í ungmennaráði.

Halla Margrét Tryggvadóttir sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum.

6.Reglur um notkun á merki Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2019110419Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að reglum um notkun á merki Akureyrarbæjar.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

7.Hönnunarstaðall Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018100303Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að hönnunarstaðli Akureyrarbæjar.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu að hönnunarstaðli með 5 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

8.Frumvarp til laga um almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál

Málsnúmer 2019110221Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 14. nóvember 2019 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál 2019. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0363.html

9.Frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál

Málsnúmer 2019110281Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2019 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0294.html
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 09:59.