Bæjarráð

3510. fundur 16. júní 2016 kl. 08:30 - 12:10 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Preben Jón Pétursson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Dagskrá
Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista mætti í stað Loga Más Einarssonar.

1.Lög um almennar íbúðir

Málsnúmer 2016060056Vakta málsnúmer

Rætt um nýsamþykkt lög um almennar íbúðir.

Benedikt Sigurðarson framkvæmdastjóri og Guðlaug Kristinsdóttir formaður Búseta á Norðurlandi mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir sjónarmið Búseta til málsins.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Lögin má finna á netslóðinni: http://www.althingi.is/altext/145/s/1437.html

2.Rekstur fræðslumála 2016

Málsnúmer 2016030017Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild og Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir rekstur fræðslumála.

Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020

Málsnúmer 2016050137Vakta málsnúmer

Lagðar fram forsendur vegna fjárhagsáætlunar 2017.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagðar forsendur.

4.Innkaupareglur Akureyrarbæjar - endurskoðun 2016

Málsnúmer 2016060084Vakta málsnúmer

Rætt um endurskoðun á innkaupareglum Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að endurskoðun á reglunum.

5.Hrísey - fasteignagjöld vegna gististaða

Málsnúmer 2016050230Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. maí 2016 frá hverfisráði Hríseyjar þar sem óskað er eftir því að teknar verði á ný upp undanþágur á greiðslum á fasteignagjöldum atvinnuhúsnæðis yfir vetrarmánuðina fyrir aðila sem leigja út gistirými til ferðamanna í Hrísey.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar erindinu eins og það er lagt fram og vísar málinu til verkefnisstjórnar Brothættra byggða.

6.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2016

Málsnúmer 2016010056Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 839. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 27. maí 2016. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

7.Hverfisráð Hríseyjar - skýrsla formanns á aðalfundi 2016

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla formanns hverfisráðs Hríseyjar sem flutt var á aðalfundi hverfisráðsins þann 25. maí sl. Skýrsluna má finna á netslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

8.Markaðsstofa Norðurlands - ársreikningur 2015 og kynning

Málsnúmer 2016060058Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Markaðsstofu Norðurlands fyrir árið 2015 og kynning á starfsemi félagsins.

9.Ferðamálasamtök Norðurlands eystra og Markaðsstofa Norðurlands - ályktun

Málsnúmer 2016060058Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ályktun frá Ferðamálasamtökum Norðurlands eystra og Markaðsstofu Norðurlands varðandi Dettifossveg og flughlað við Akureyrarflugvöll.

10.Greið leið ehf - aðalfundur 2016

Málsnúmer 2016040207Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð aðalfundar Greiðrar leiðar ehf sem haldinn var 10. maí sl.

11.Stefna - SS Byggir ehf

Málsnúmer 2015030064Vakta málsnúmer

Lagður var fram til kynningar dómur í máli E-51/2015 sem SS Byggir ehf og Hálönd ehf höfðuðu gegn Akureyrarbæ vegna gatnagerðargjalda af orlofshúsum í Hálöndum.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 12:10.