Velferðarráð

1211. fundur 24. júní 2015 kl. 14:00 - 17:13 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Karólína Gunnarsdóttir Þjónustustjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Kolbeinn Aðalsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Forgangur í leiguhúsnæði 2015 - áfrýjanir

Málsnúmer 2015010024Vakta málsnúmer

Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi kynnti áfrýjun vegna forgangs á biðlista eftir leiguíbúð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

2.Fjárhagserindi 2015 - áfrýjanir

Málsnúmer 2015010023Vakta málsnúmer

Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

3.Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2015

Málsnúmer 2015010173Vakta málsnúmer

Ester Lára Magnúsdóttir félagsráðgjafi og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri kynntu málefni einstaklings.
Málefni einstaklinga eru vistuð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

4.Samband íslenskra sveitarfélaga - félagsþjónustunefnd

Málsnúmer 2012020043Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 23., 24. og 25. fundar félagsþjónustunefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

5.Fjölskyldudeild - ársskýrslur 2013 - 2015

Málsnúmer 2015060133Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri lagði fram til kynningar ársskýrslu fjölskyldudeildar fyrir árið 2014.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

6.Fundaáætlun velferðarráðs

Málsnúmer 2015060008Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju fundaáæltun velferðarráðs fyrir haustið 2015.
Velferðarráð samþykkir fundaáætlunina.

7.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2015

Málsnúmer 2015010045Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjórar ÖA Halldór Sigurður Guðmundsson, búsetudeildar Soffía Lárusdóttir og fjölskyldudeildar Guðrún Ólafía Sigurðardóttir lögðu fram og kynntu rekstraryfirlit fyrir fyrstu fimm mánuði ársins.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

8.Útskriftarteymi Sjúkrahússins á Akureyri - alvarlegt ástand við þjónustu aldraðra

Málsnúmer 2015060062Vakta málsnúmer

Lagt fram afrit bréfs dagsett 29. maí 2015 frá útskriftarteymi SAk sem beint er til stjórnar Sjúkrahússins á Akureyri, heilbrigðisráðherra og velferðarráðs Akureyrar.
Lagt fram til kynningar.
Velferðarráð tekur undir áherslur og niðurstöðu bréfsins um mikilvægi markviss samstarfs þeirra þjónustueininga sem koma að málefnum aldraðs fólks. Hafa ber í huga skyldur ríkis annars vegar og sveitafélaga hins vegar vegna þjónustu við aldrað fólk.

9.CONNECT - verkefnið

Málsnúmer 2014060231Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar greindi frá lausnum á sviði velferðartækni sem kynntar voru í nýafstaðinni vinabæjaheimsókn til Västerås í Svíþjóð. Västerås er eins og Akureyri þátttakandi í Connect verkefningu.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

10.Velferðaráð - vinabæjasamskipti 2015

Málsnúmer 2015040033Vakta málsnúmer

Jóhann Gunnar Sigmarsson varaformaður velferðarráðs og Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar sögðu frá vinabæjamóti sem haldið var í Västerås í Svíþjóð 10.- 12. júní 2015.
Velferðarráð þakkar kynninguna.

11.Þórunnarstræti 99 - heitur pottur

Málsnúmer 2015050177Vakta málsnúmer

Búsetudeild óskar eftir fjárveitingu að upphæð 5 milljónir kr. til að stækka pall við húsnæði skammtíma- og skólavistunar, Þórunnarstræti 99.
Einnig er óskað eftir 1,2 milljónum kr. til að setja upp geymsluskúr fyrir starfsemina á lóðinni. Áætluð hækkun rekstrarkostnaðar á mánuði næstu 10 árin eru kr. 53 þúsund.
Velferðarráð þakkar velvilja í garð notenda í skammtíma- og skólavistuninni.
Velferðarráð getur ekki mætt kostnaðinum á þessu ári og vísar kostnaðinum til fjárhagsáætlunar 2016.
Velferðarráð felur búsetudeild að vinna málið áfram í samvinnu við Fasteignir Akureyrarbæjar.
Valur Sæmundsson V-lista og Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi Æ-lista yfirgáfu fundinn kl. 16:58.

12.Búsetudeild - ársskýrsla 2014

Málsnúmer 2015060167Vakta málsnúmer

Ársskýrsla búsetudeildar 2014 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:13.