Velferðarráð

1208. fundur 06. maí 2015 kl. 15:10 - 18:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Námskeið fyrir félagsmálanefndir og starfsfólk

Málsnúmer 2015010265Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar dagskrá námskeiðs fyrir félagsmálanefndir og starfsfólk.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2015

Málsnúmer 2015010045Vakta málsnúmer

Rekstraryfirlit deilda velferðarráðs fyrir janúar til mars lagt fram til kynningar.
Bryndís Dagbjartsdóttir skrifstofustjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.

3.Fjárhagserindi 2015 - áfrýjanir

Málsnúmer 2015010023Vakta málsnúmer

Snjólaug Jóhannesdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra er færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

4.Grófin - geðverndarmiðstöð - styrkumsókn 2015

Málsnúmer 2015040171Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn dagsett 21. apríl 2015 frá Grófinni - geðverndarmiðstöð um styrk.
Bryndís Dagbjartsdóttir skrifstofustjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

5.Samtök um sorgarviðbrögð Norðurlandi eystra - styrkbeiðni 2015

Málsnúmer 2015040186Vakta málsnúmer

Lögð fram styrkbeiðni dagsett 7. apríl 2015 frá Samhygð, samtökum um sorg og sorgarviðbrögð.
Bryndís Dagbjartsdóttir skrifstofustjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

6.Aflið - systursamtök Stígamóta - styrkbeiðni - samstarfssamningur 2015

Málsnúmer 2015040043Vakta málsnúmer

Beiðni frá Aflinu um endurnýjun á samstarfssamningi tekin fyrir að nýju. Fulltrúar Aflsins mættu á fundinn.
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar Ingibjörgu Þórðardóttur og Eyglóu Sigurðardóttur fulltrúum frá Aflinu fyrir kynninguna. Formaður velferðarráðs og framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar munu vinna að nýjum samningi.

7.Búsetudeild - einstaklingsmál 2015

Málsnúmer 2015050008Vakta málsnúmer

Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu þörf á aukinni þjónustu í skammtímavistun.
Velferðarráð samþykkir breytta þjónustuþörf í skammtímavistun.

8.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA kynnti tímabundnar úrlausnir í einstaklingsmáli og reifaði hugmyndir um frekari verkefni á því sviði.

9.CONNECT - verkefnið

Málsnúmer 2014060231Vakta málsnúmer

Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA sagði frá öryggis- og brunakerfum, neyðahnappi og möguleikum fjarvöktunar.

10.Stefnumótun og starfsáætlun velferðarráðs 2014 - 2018

Málsnúmer 2014090101Vakta málsnúmer

Formaður velferðarráðs, Sigríður Huld Jónsdóttir, lagði fram minnispunkta um gerð velferðarstefnu.
Velferðarráð fór yfir minnispunktana og var formanni velferðarráðs falið að hefja vinnu að ráðningu verkefnastjóra velferðarstefnu.

Fundi slitið - kl. 18:00.