Velferðarráð

1352. fundur 11. maí 2022 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Hermann Ingi Arason
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Maron Pétursson
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Guðrún Guðmundsdóttir forstöðumaður kjalarsíðu og snægils
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá
Maron Pétursson L-lista sat fundinn í forföllum Guðrúnar Karitasar Garðarsdóttur.

1.Velferðarráð - gjaldskrá fyrir félagslegt húsnæði 2021-2022

Málsnúmer 2021111421Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um vinnu við endurskoðun húsaleigu félagslegra leiguíbúða dagsett 9. maí 2022.

Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúi, Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hag- og áætlanagerðar sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vísar erindinu áfram til umræðu í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 2023.

2.Velferðarsvið - velferðartækni

Málsnúmer 2018100384Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála varðandi velferðartækni á sviðinu og lagt fram minnisblað dagsett 11. maí 2022.

Kristinn Már Torfason forstöðumaður Þrastarlundar, búsetuþjónustu fyrir fatlaða, sat fundinn undir þessum lið.

3.Hafnarstræti 16

Málsnúmer 2021081099Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Guðrúnar Guðmundsdóttur forstöðumanns og Guðrúnar Sigurðardóttur sviðsstjóra dagsett 4. maí 2022.

Velferðarráð telur að brýnt sé að fá ný búsetuúrræði fyrir fatlað fólk inn í kerfið sem fyrst og leggur því til að framkvæmdum við búetukjarnann að Hafnarstræti 16 verði hraðað.

Málinu er vísað til bæjarráðs.

4.Heimaþjónusta - reglur

Málsnúmer 2020090631Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fyrstu drög að reglum um stuðnings- og stoðþjónustu.

5.Erindi til sveitarfélaga vegna móttöku flóttafólks

Málsnúmer 2022030523Vakta málsnúmer

Rætt um móttöku flóttafólks á vegum Akureyrarbæjar.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.

6.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2022

Málsnúmer 2022041998Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit velferðarsviðs eftir fyrstu þrjá mánuði ársins.

7.Velferðarsvið - ársskýrsla 2021 - 2022

Málsnúmer 2022050001Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ársskýrsla velferðarsviðs fyrir árið 2021.

8.Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018

Málsnúmer 2022050430Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018.

Fundi slitið - kl. 17:00.