Velferðarráð

1330. fundur 02. desember 2020 kl. 14:00 - 16:20 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjölsmiðjan á Akureyri - beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings 2020

Málsnúmer 2020110223Vakta málsnúmer

Lagt fram að nýju erindi dagsett 9. nóvember 2020 frá Erlingi Kristjánssyni forstöðumanni Fjölsmiðjunnar á Akureyri þar sem óskað er eftir endurnýjun á rekstrarstyrk. Fyrir liggja ný gögn sem eru 10 mánaða rekstarniðurstaða Fjölsmiðjunnar 2020, minnisblað frá Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs dagsett 30. nóvember 2020, auk þess sem Erlingur Kristjánsson kynnti bréf sitt dagsett 29. nóvember 2020.

Karen Malmquist og Arnar Þór Jóhannesson fulltrúar í stjórn Fjölsmiðjunnar og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir að styrkja Fjölsmiðjuna um kr. 1.000.000 til að mæta tekjutapi vegna COVID-19. Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að vinna að áframhaldandi samningi um rekstur Fjölsmiðjunnar fyrir árið 2021.

2.Móttökusveitarfélög - beiðni félagsmálaráðuneytisins um þátttöku í tilraunaverkefni

Málsnúmer 2020110402Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá félagsmálaráðuneyti dagsett 5. nóvember 2020 varðandi þátttöku Akureyrarbæjar í tilraunaverkefni varðandi samræmda móttöku flóttafólks.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Sviðsstjóra fjölskyldusviðs er falið að afla frekari upplýsinga um málið og leggja fyrir ráðið síðar.

3.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2021

Málsnúmer 2020090016Vakta málsnúmer

Tekin til umræðu drög að fjárhagsáætlun.

4.Samstarf Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri og Rauða krossins við Eyjafjörð - styrkbeiðni 2020

Málsnúmer 2020120002Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 13. nóvember 2020 frá Jólaaðstoð - samstarfi Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishersins á Akureyri og Rauða krossins við Eyjafjörð, þar sem óskað er eftir frjálsum framlögum til styrktar jólaaðstoðar.
Velferðarráð samþykkir styrkveitingu að upphæð kr. 300.000.

5.Stígamót - styrkbeiðni fyrir árið 2020

Málsnúmer 2019100322Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Stígamótum dagsett 9. nóvember 2020 þar sem óskað er eftir fjárstuðningi og samstarfi um reksturinn.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

6.Fundaáætlun velferðarráðs

Málsnúmer 2015060008Vakta málsnúmer

Lögð fram fundaáætlun velferðarráðs fyrir tímabilið janúar til júní 2021.

7.Afskriftir lána 2014-2020

Málsnúmer 2014120067Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga Guðrúnar Sigurðardóttur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að afskriftum lána í fjárhagsaðstoð.
Velferðarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.

8.NPA - tímagjald 2021

Málsnúmer 2020110941Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Karólínu Gunnarsdóttur sviðsstjóra búsetusviðs og Kolbeins Aðalsteinssonar skrifstofustjóra búsetusviðs dagsett 30. nóvember 2020 um tillögu að hækkun tímagjalds NPA.

Tímagjald í NPA hefur hækkað reglulega frá því þjónustan hófst árið 2013. Nauðsynlegt er að tímagjald á hverjum tíma sé í takt við kjarasamninga þannig að NPA notendur geti greitt laun samkvæmt þeim.
Velferðarráð samþykkir hækkun á tímagjaldi NPA.

9.Búsetusvið - gjaldskrá 2021

Málsnúmer 2020110940Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs lagði fram tillögu að óbreyttri gjaldskrá fyrir Lautina, athvarf fyrir geðfatlað fólk og 2,5% hækkun gjaldskrár í heimaþjónustu Akureyrarbæjar. Lagt er til að gjaldskrá Lautarinnar verði kaffi/te kr. 100 og hádegismatur verði kr. 600. Fyrir heimaþjónustu verði gjald vegna aðstoðar við almenn heimilisstörf og rekstur erinda hækkað úr kr. 1.391 í kr. 1.426 og gjald vegna heimsends matar hækkað úr kr. 1.335 í kr. 1.369.
Velferðarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá búsetusviðs fyrir árið 2021.

10.Aukið félagsstarf fullorðinna sumarið 2020 vegna COVID-19

Málsnúmer 2020050512Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir því hvernig styrkur félagsmálaráðuneytis var nýttur til að auka starfsemi og þjónustu í félagsstarfi og þjónustu við fullorðna sumarið 2020 vegna COVID-19.
Velferðarráð þakkar starfsfólki Akureyrarbæjar fyrir góða vinnu við óvenjulegar aðstæður.

11.Stuðningur til að efla virkni vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu á tímum COVID-19

Málsnúmer 2020050513Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir því hvernig styrkur félagsmálaráðuneytis til að efla virkni, vellíðan og félagsfærni barna í viðkvæmri stöðu á tímum COVID-19 var nýttur sl. sumar.
Velferðarráð þakkar starfsfólki Akureyrarbæjar fyrir góða vinnu við óvenjulegar aðstæður.

12.Styrkur vegna þjónustu við fatlað fólk sumarið 2020 vegna COVID-19

Málsnúmer 2020060094Vakta málsnúmer

Gerð grein fyrir því hvernig styrkur félagsmálaráðuneytis til að auka frístundastarfsemi fyrir fatlað fólk var nýtt sl. sumar vegna COVID-19.
Velferðarráð þakkar starfsfólki Akureyrarbæjar fyrir góða vinnu við óvenjulegar aðstæður.

Fundi slitið - kl. 16:20.