Velferðarráð

1294. fundur 06. febrúar 2019 kl. 14:00 - 17:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
  • Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir
Dagskrá
Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista mætti í forföllum Hermanns Inga Arasonar.

1.Búsetusvið - breyting á skipuriti

Málsnúmer 2019010260Vakta málsnúmer

Lagt er fyrir minnisblað frá Laufeyju Þórðardóttur settum sviðsstjóra búsetusviðs þar sem beðið er um breytingu á skipuriti til að ráða nýjan forstöðumann.

Velferðarráð samþykkir breytingu á skipuriti og vísar málinu til bæjarráðs.

2.Fjárhagsaðstoð - reglur

Málsnúmer 2019010388Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur að breytingum á reglum Akureyrarbæjar um fjárhagsaðstoð skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Lagt fram kynningar og umræðu. Halldóru Kristínu Hauksdóttur lögfræðingi fjölskyldusviðs falið að vinna málið áfram og leggja fram lokadrög og kostnaðargreiningu.

3.Samstarf um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum Reykjavíkurborgar fyrir heimilislausa

Málsnúmer 2019010172Vakta málsnúmer

Reykjavíkurborg óskar eftir samstarfi um greiðslu gistináttagjalds í neyðarathvörfum borgarinnar.
Velferðarráð samþykkir að settum sviðsstjóra fjölskyldusviðs, Karólínu Gunnarsdóttur, verði falið að gera drög að samningi við Reykjavíkurborg um greiðslu gistináttagjalds neyðarathvarfa og þau drög lögð fram á næsta fundi.

4.Fjárhagsaðstoð 2018

Málsnúmer 2018040005Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit vegna veittrar fjárhagsaðstoðar árið 2018.

5.Fjölskyldusvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2019

Málsnúmer 2019020023Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu málaflokka - félagsþjónusta og barnavernd.

Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.

6.NPA 2017-2019

Málsnúmer 2018020006Vakta málsnúmer

Notendastýrð persónuleg aðstoð var lögfest skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi þjónustuþarfir 1. október 2018.

Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lögðu fram tillögu að hækkun á tímagjaldi fyrir vinnustund sem greidd er til þjónustuþega NPA samninga.
Velferðarráð samþykkir tillögu að hækkun á tímagjaldi fyrir vinnustund sem greidd er til þjónustuþega NPA samninga.

7.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 30. janúar. Unnið að gerð aðgerðaáætlunar við velferðarstefnu Akureyrarbæjar.

Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð óskar eftir því að bæjarráð, frístundaráð, fræðsluráð, skipulagsráð, stjórn Akureyrarstofu og umhverfis- og mannvirkjaráð geri tillögur til velferðarráðs að aðgerðaáætlun vegna þeirra verkefna í velferðarstefnu Akureyrarbæjar er heyra undir þeirra svið.

Óskað er eftir að ráðin skili niðurstöðum sínum til velferðarráðs fyrir 1. mars.

Velferðarráð felur sviðsstjórum að ljúka uppsetningu tillagna að aðgerðaáætlun eins og rætt var á fundinum. Tillögurnar verða teknar fyrir á næsta fundi velferðarráðs þann 20. febrúar.



Fundi slitið - kl. 17:15.