NPA 2017-2019

Málsnúmer 2018020006

Vakta málsnúmer

Velferðarráð - 1281. fundur - 08.08.2018

Þann 1. október nk. taka gildi lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Með þeim er notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA), sem fram að þessu hefur verið veitt í tilraunaskyni samkvæmt bráðabirgðaákvæðum gildandi laga, lögfest sem þjónustuform. Jón Hrói Finnsson, sviðsstjóri búsetusviðs og Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri stoðþjónustu á búsetusviði fóru yfir stöðu varðandi umsóknir um NPA og vinnu við undirbúning umsókna.

Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs, Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri, Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar kynninguna og lýsir vilja til að áfram verði unnið að gerð nýrra samninga. Áætlaður viðbótarkostnaður vegna nýrra NPA samninga auk hækkunar tímagjalds er um 50 milljónir króna.
Hermann Ingi Arason vék af fundi kl. 16:30.

Velferðarráð - 1294. fundur - 06.02.2019

Notendastýrð persónuleg aðstoð var lögfest skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi þjónustuþarfir 1. október 2018.

Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lögðu fram tillögu að hækkun á tímagjaldi fyrir vinnustund sem greidd er til þjónustuþega NPA samninga.
Velferðarráð samþykkir tillögu að hækkun á tímagjaldi fyrir vinnustund sem greidd er til þjónustuþega NPA samninga.