Velferðarráð

1228. fundur 27. apríl 2016 kl. 15:00 - 18:10 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Bryndís Dagbjartsdóttir fundarritari
Dagskrá
Halldóra Kristín Hauksdóttir B-lista mætti á fundinn kl. 15:05.

1.Fjárhagserindi 2016 - áfrýjanir

Málsnúmer 2016010011Vakta málsnúmer

Katrín Árnadóttir félagsráðgjafi á fjölskyldudeild kynnti áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Áfrýjanir og afgreiðsla þeirra eru færðar í trúnaðarbók velferðarráðs.

2.Samstarfsverkefni gegn heimilisofbeldi

Málsnúmer 2014120069Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar lokaskýrsla samstarfsverkefnis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra og Akureyrarbæjar um heimilisofbeldi. Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar fór yfir efni skýrslunnar.

3.Aflið - systursamtök Stígamóta - styrkbeiðni - samstarfssamningur 2015

Málsnúmer 2015040043Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur Aflsins og Akureyrarbæjar tekinn fyrir að nýju.
Velferðarráð felur Guðrúnu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra fjölskyldudeildar að vinna málið áfram, það verður tekið fyrir á næsta fundi ráðsins.

4.Velferðarstefna 2014-2018

Málsnúmer 2015010191Vakta málsnúmer

Anna Lilja Björnsdóttir verkefnastjóri mætti á fund ráðsins undir þessum lið og kynnti vinnu við gerð velferðarstefnu.

Farið yfir stöðu verkefna við gerð velferðarstefnu.

5.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2016

Málsnúmer 2016020160Vakta málsnúmer

Rekstrarniðurstaða allra málaflokka velferðarráðs frá janúar til mars 2016 lögð fram til kynningar.

6.Velferðarráð - hagræðing 2016-2019

Málsnúmer 2016030168Vakta málsnúmer

Farið yfir tillögur til hagræðingar sbr. umræðu á síðasta fundi ráðsins.

7.Búsetudeild - ársskýrsla 2015

Málsnúmer 2016040182Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri búsetudeildar lögðu fram til kynningar ársskýrslu búsetudeildar 2015.

8.Búsetudeild - einstaklingsmál 2016

Málsnúmer 2016020007Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Laufey Þórðardóttir verkefnastjóri búsetudeildar kynntu stöðu einstaklingsmáls. Málið var áður á dagskrá velferðaráðs þann 2. febrúar 2016.
Einstaklingsmál eru skráð í trúnaðarbók velferðarráðs.

Fundi slitið - kl. 18:10.