Velferðarráð

1221. fundur 16. desember 2015 kl. 14:00 - 17:15 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Kolbeinn Aðalsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar - stefna og framkvæmdaáætlun 2014-2018

Málsnúmer 2015110069Vakta málsnúmer

Áskell Örn Kárason forstöðumaður barnaverndar kynnti framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar Eyjafjarðar.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.

2.Stuðningsfjölskyldur - greiðslur til stuðningsfjölskyldna

Málsnúmer 2012030081Vakta málsnúmer

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynnti þörf fyrir breytingu á greiðslum til stuðningsfjölskyldna. Lagt fram minnisblað Karólínu Gunnarsdóttur og Fanneyjar Jónsdóttur dagsett 14. desember 2015.
Velferðarráð samþykkir tillögu að breytingu á greiðslum til stuðningsfjölskyldna enda rúmast þær innan fjárhagsáætlunar 2016.

3.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar kynntu stöðuna í NPA verkefninu.
Velferðarráð samþykkir að halda áfram með þá NPA samninga sem gerðir hafa verið, óski þjónustuþegar eftir því. Samþykkt að hækka vinnustund um 2,5% í kr. 3.090 enda rúmist það innan fjárhagsáætlunar 2016. Nýir samningar verða ekki gerðir á árinu 2016.

4.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 2015080062Vakta málsnúmer

3ja ára áætlanir búsetudeildar og fjölskyldudeildar lagðar fram til kynningar. Guðrún Siguðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat undir þessum lið.

5.Fundaáætlun velferðarráðs

Málsnúmer 2015060008Vakta málsnúmer

Fundaáætlun velferðarráðs janúar til júní 2016 lögð fram.

6.Velferðarstefna 2014-2018

Málsnúmer 2015010191Vakta málsnúmer

Staða vinnu við gerð velferðarstefnu 2014-2018 kynnt og rædd. Anna Lilja Björnsdóttir verkefnisstjóri velferðarstefnu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.

Fundi slitið - kl. 17:15.