Umhverfisnefnd

82. fundur 14. maí 2013 kl. 16:15 - 18:00 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hulda Stefánsdóttir formaður
  • Páll Steindór Steindórsson
  • Jón Ingi Cæsarsson
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
  • Sif Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
Dagskrá

1.Úrgangsmál - fræðsla og eftirfylgni til almennings

Málsnúmer 2013030068Vakta málsnúmer

Helgi Pálsson rekstrarstjóri Gámaþjónustu Norðurlands mætti á fundinn og kynnti nýjar tillögur að merkingum á endurvinnslustöðvar og breytingar á áður útgefnum bæklingi um úrgangsmál, sem kynntur verður á heimasíðu. Einnig voru ræddar hugmyndir um fræðsluefni á N4.

2.Loftslagsráðstefna í Álasundi

Málsnúmer 2012090075Vakta málsnúmer

Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur kynnti fyrirhugaða loftslagsráðstefnu í Álasundi sem haldin verður dagana 12.- 14. júní nk.
Kristinn Frímann Árnason D-lista yfirgaf fundinn.

3.Kynjuð fjárhagsáætlunargerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Rætt var um að skoða m.a. hlutfall milli kynja á innsendum tillögum vegna umhverfistillagna í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar.

4.Fráveita - upplýsingar um stöðu

Málsnúmer 2013040085Vakta málsnúmer

Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur kynnti niðurstöður á mánaðarlegum mælingum saurkólígerla við strandlengjuna.
Lagt fram til kynningar.

5.Miðhúsabraut - Súluvegur - breyting á aðal- og deiliskipulagi - áfyllingarstöð fyrir metan

Málsnúmer 2013020063Vakta málsnúmer

Kynnt var erindi dags. 7. maí 2013 frá skipulagsdeild þar sem beðið er um umsögn á tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2005-2018 og deiliskipulagi fyrir athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut og Súluveg.

Málinu frestað til næsta fundar.

6.Akstursíþrótta- og skotsvæði á Glerárdal

Málsnúmer 2013050070Vakta málsnúmer

Aksturssvæðin - teikning af stækkun lóða KKA og Skotfélagsins lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.