Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar

205. fundur 30. mars 2012 kl. 08:15 - 10:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hjörleifur Hallgríms Herbertsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir
  • Óskar Gísli Sveinsson
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun 2012 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2011090132Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla um skiptingu fjárveitingar til viðhalds á árinu 2012.

Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi S-lista óskar bókað: Undirritaður lýsir áhyggjum sínum með þann mikla niðurskurð sem verið hefur til viðhaldsmála á fasteignum bæjarins. Það gefur auga leið að með þessu er verið að byggja upp vandamál sem mun leggjast á bæjarsjóð með miklum þunga í framtíðinni.

Þessi niðurskurður lýsir skammsýni og býr til fleiri vandamál en hann leysir.

2.Naustaskóli II. áfangi - nýbygging

Málsnúmer 2010090010Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 2. mars 2012 frá Ágústi Jakobssyni skólastjóra Naustaskóla og Gunnari Gíslasyni fræðslustjóra Akureyrarbæjar. Minnisblaðið inniheldur rökstuðning fyrir því að framkvæmdum við miðrými Naustaskóla verði flýtt.

3.Akureyrarvöllur - endurbætur 2010-2012

Málsnúmer 2010070100Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar kostnaðaráætlun fyrir því að setja sæti í stúkuna.

4.Íþróttasvæði Þórs - leki í stúku

Málsnúmer 2010020102Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 23. mars 2012 vegna viðgerða á stúkunni.

5.Húsnæði dagþjónustu, skammtímavistunar og íbúðarsambýli 2012 FA

Málsnúmer 2011120037Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 27. mars 2012 með hugmyndum sem uppi eru varðandi húsnæði skammtímavistunar og dagþjónustu. Einnig rætt um mögulega staðsetningu 6 íbúða sambýlis.

6.Íþróttahöllin - endurnýjun á bekkjum

Málsnúmer 2011100049Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða opnunar tilboða í endurnýjun á áhorfendabekkjum niður við gólf.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við Stálflex ehf á grundvelli tilboðs 5.

7.Ráðhús skjalasafn - skjalaskápar og hillur í geymslu í kjallara

Málsnúmer 2012030229Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá skrifstofu Ráðhúss dags. 23. mars 2012, þar sem óskað er eftir fjárveitingu í kaup á nýjum skjalaskápum og hillum í kjalla Ráðhússins.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir erindið og að búnaðarkaupin verði greidd af sérstökum búnaðarkaupalið í fjárhagsáætlun bæjarins.

8.Naust - niðurrif eigna

Málsnúmer 2012030236Vakta málsnúmer

Rætt um möguleg niðurrif hluta fasteigna á Naustum.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að sækja um það til skipulagsnefndar að húsin verði rifin skv. framlögðum gögnum.

9.Íþróttahús KA - skilamat fyrir endurnýjun á gólfi og bekkjum

Málsnúmer 2012030234Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar skilamat fyrir framkvæmdirnar.

10.Verkfundargerðir FA 2012

Málsnúmer 2012010240Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:
Hjúkrunarheimili Vestursíðu 9 - SS Byggir ehf: 17. verkfundur dags. 1. mars 2012.
Þrastarlundur 3-5 - Virkni ehf: 8. og 9. verkfundur dags. 6. og 20. mars 2012.
Naustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 18. verkfundur dags. 8. mars 2012.
Íbúðarsambýli: 1.- 4. fundur verkefnisliðs dags. 19. janúar, 6. febrúar, 5. og 27. mars 2012.

Fundi slitið - kl. 10:05.