Fjárhagsáætlun 2012 - Fasteignir Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2011090132

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 196. fundur - 30.09.2011

Lögð fram til kynningar drög að húsaleiguáætlun FA fyrir árið 2012.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 197. fundur - 07.10.2011

Rætt um drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2012.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 198. fundur - 17.10.2011

Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 2012.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir áætlunina með umræddum breytingum og vísar henni áfram til afgreiðslu í bæjarráði.

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 205. fundur - 30.03.2012

Lögð fram til kynningar skýrsla um skiptingu fjárveitingar til viðhalds á árinu 2012.

Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi S-lista óskar bókað: Undirritaður lýsir áhyggjum sínum með þann mikla niðurskurð sem verið hefur til viðhaldsmála á fasteignum bæjarins. Það gefur auga leið að með þessu er verið að byggja upp vandamál sem mun leggjast á bæjarsjóð með miklum þunga í framtíðinni.

Þessi niðurskurður lýsir skammsýni og býr til fleiri vandamál en hann leysir.