Stjórn Akureyrarstofu

178. fundur 08. desember 2014 kl. 16:15 - 17:00 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Elvar Smári Sævarsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Skúli Gautason framkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Dagskrá

1.Íþróttafélagið Þór - styrkbeiðni vegna þrettándagleði 2015

Málsnúmer 2014120051Vakta málsnúmer

Íþróttafélagið Þór verður 100 ára á næsta ári. Af því tilefni vill félagið gera árlega þrettándagleði sína sérstaklega vel úr garði og sækir um 300.000 kr. styrk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að veita Íþróttafélaginu Þór 200.000 kr. styrk vegna viðburðarins.

2.Samstarfssamningar um menningarmál

Málsnúmer 2014120052Vakta málsnúmer

Margir samstarfssamningar um menningarmál renna út um áramótin.
Lagt var fram til kynningar yfirlit yfir samstarfssamninga um menningarmál.

3.Reglur um útimarkaði og sölutjöld á Akureyri

Málsnúmer 2005080075Vakta málsnúmer

Akureyrarbær hefur komið á laggirnar vinnuhópi til að endurskoða reglur um útimarkaði og sölutjöld á Akureyri. Akureyrarstofa á að skipa einn fulltrúa í vinnuhópinn.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að tilnefna menningar- og viðburðafulltrúa Akureyrarstofu sem fulltrúa sinn í nefndinni.

4.Stofnun sjóðs til kaupa á listaverkum

Málsnúmer 2014120053Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóra Akureyrarstofu og formanni stjórnar var falið að ræða við Fasteignir Akureyrarbæjar um að leggja grunn að sjóði til listaverkakaupa.

Fundi slitið - kl. 17:00.