Stjórn Akureyrarstofu

170. fundur 28. ágúst 2014 kl. 16:15 - 18:30 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Elvar Smári Sævarsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Skúli Gautason fundarritari
Dagskrá

1.Akureyrarstofa - samráðsfundir með verkefnastjórum

Málsnúmer 2012090022Vakta málsnúmer

Verkefnastjórar á Akureyrarstofu mættu á fundinn, kynntu sig fyrir stjórn Akureyrarstofu og fóru yfir helstu verkefni sín.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar verkefnastjórum fyrir komuna.

2.Verslunarmannahelgin - Ein með öllu 2014

Málsnúmer 2014070022Vakta málsnúmer

Kristín Sóley Björnsdóttir verkefnastjóri viðburða fór yfir framkvæmd og árangur hátíðarinnar Einnar með öllu 2014.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Kristínu Sóleyju fyrir greinargóða samantekt um hátíðina.

3.Listasumar 2015

Málsnúmer 2014080143Vakta málsnúmer

Hlynur Hallsson forstöðumaður Sjónlistamiðstöðvarinnar sat fund stjórnar Akureyrarstofu undir þessum lið og lagði fram áætlun um endurvakningu Listasumars.

Það virðist vera almennur áhugi fyrir því að endurvekja Listasumar. Það stuðlar að því að gera bæinn litríkari og skemmtilegri. Listasumar er bæði ætlað heimamönnum og ferðamönnum, innlendum sem erlendum. Það sinnir jafnt ungum sem öldnum.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir greinargóða kynningu.

4.Deiglan - aðkoma Gilfélagsins

Málsnúmer 2014020070Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 27. ágúst 2014 frá Gilfélaginu.

Stjórn Akureyrarstofu felur formanni og framkvæmdastjóra að vinna að framgangi málsins í samráði við Gilfélagið og starfsmenn Sjónlistamiðstöðvarinnar.

5.Spurningaþátturinn Útsvar

Málsnúmer 2014080121Vakta málsnúmer

Borist hefur erindi dagsett 25. ágúst 2014 frá RÚV um þátttöku í spurningaþættinum Útsvari.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra að velja í keppnislið skv. umræðum á fundinum.

Fundi slitið - kl. 18:30.