Stjórn Akureyrarstofu

151. fundur 26. nóvember 2013 kl. 17:00 - 19:33 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Helgi Vilberg Hermannsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Leikfélag Akureyrar - ársreikningur

Málsnúmer 2013010067Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur LA og fleiri gögn í kjölfar aðalfundar félagsins sem fram fór þann 21. nóvember sl.
Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri félagsins og Hlynur Hallsson stjórnarmaður komu á fundinn og fóru yfir niðurstöðu ársreikningsins og fleiri mál sem honum tengjast.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar þeim Eiríki og Hlyni fyrir komuna á fundinn og greinargóðar upplýsingar.

2.Aukin samvinna menningarstofnana - viðræður LA, MH og SN

Málsnúmer 2012090021Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna í viðræðunum milli félaganna. Stjórnir þeirra eru nú að fara yfir þær sameiginlegu tillögur sem fyrir liggja og er viðbragða að vænta fyrir lok nóvember.

3.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2013-2018

Málsnúmer 2011020012Vakta málsnúmer

Farið að nýju yfir drög að endurskoðaðri menningarstefnu í ljósi athugasemda sem fram komu við umræður um hana í bæjarstjórn sem formaður fór yfir.

Stjórn Akureyrarstofu felur formanni og framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að gera tillögur að breytingum á stefnunni í samræmi við umræður á fundinum.

4.Langtímaáætlun Akureyrarstofu

Málsnúmer 2013040234Vakta málsnúmer

Farið yfir drög að langtímaáætlun fyrir málaflokka stjórnarinnar. Vinnu haldið áfram á næsta fundi.

Fundi slitið - kl. 19:33.