Stjórn Akureyrarstofu

128. fundur 05. september 2012 kl. 17:00 - 19:20 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Jón Hjaltason
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Helgi Vilberg Hermannsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Akureyrarstofa - samráðsfundir með verkefnisstjórum

Málsnúmer 2012090022Vakta málsnúmer

Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála og Hreinn Þór Hauksson verkefnisstjóri atvinnumála mættu á fundinn undir þessum lið og fóru yfir helstu verkefni á sínum sviðum og stærri verkefni sem framundan eru á næstu misserum.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar Huldu Sif og Hreini Þór fyrir greinargóðar upplýsingar og gagnlegar umræður.

2.Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012

Málsnúmer 2009090008Vakta málsnúmer

Hápunktur hátíðarhalda vegna 150 ára afmælis Akureyrarkaupstaðar var um nýliðna helgi.
Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri á Akureyrarstofu sem starfað hefur með afmælisnefndinni sat fundinn undir þessum lið.

Stjórn Akureyrarstofu fagnar því hve einstaklega vel tókst til með Afmælisvöku Akureyrar og óskar afmælisnefnd bæjarins og starfsfólki hennar til hamingju með þennan góða árangur. Ljóst er að vel hefur tekist til með samstarf nefndarinnar við Akureyrarstofu og aðra aðila við undirbúning og að hjá starfsmönnum býr umtalsverð þekking og reynsla á skipulagningu og framkvæmd viðburða.

Stjórn Akureyrastofu þakkar sérstaklega íbúum bæjarins fyrir þeirra þátt í að gera glæsilegt afmælisár að veruleika.

3.Leikfélag Akureyrar - samráðsfundur

Málsnúmer 2011080046Vakta málsnúmer

Ragnheiður Skúladóttir listrænn stjórnandi og Eiríkur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri LA komu á fundinn undir þessum lið og fóru yfir starfsemina á komandi vetri og stöðu rekstrarins.

Stjórn Akureyrarstofu þakkar þeim Ragnheiði og Eiríki fyrir komuna á fundinn og óskar Leikfélaginu til hamingju með metnaðarfulla vetrardagskrá.

4.Aukin samvinna menningarstofnana - viðræður LA, MH og SN 2012

Málsnúmer 2012090021Vakta málsnúmer

Fulltrúar Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands hafa ákveðið að ganga til viðræðna, undir stjórn Akureyrarstofu, um aukið samstarf og mögulegan samrekstur stofnananna. Lögð fram til kynningar og umræðu drög að viðræðuáætlun.

Stjórn Akureyrastofu samþykkir viðræðuáætlunina fyrir sitt leyti og felur formanni stjórnar og framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að taka þátt í viðræðunum fyrir sína hönd.

5.Menningarhúsið Hof - rekstrarafgangur

Málsnúmer 2012080059Vakta málsnúmer

Á fundi sínum þann 23. ágúst 2012 fól bæjarráð stjórn Akureyrarstofu að vinna tillögu um ráðstöfun rekstrarafgangs upp á 1,5 mkr. sem Menningarfélagið Hof skilaði Akureyrarbæ eftir góðan árangur í rekstri félagsins á síðasta starfsári. Lagt fram til umræðu.

6.Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2011 - tímaáætlun

Málsnúmer 2011020012Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna á vinnunni við endurskoðun menningarstefnunnar og tímaáætlun fyrir hana. Formaður gerði að tillögu sinni að drög að nýrri stefnu verði lögð fyrir stjórn Akureyrarstofu þann 25. október og opinn umræðufundur um þau verði haldinn viku seinna eða 1. nóvember nk.
Enn er því stefnt að því að vinnunni ljúki í nóvember eins og tímaáætlun gerir ráð fyrir.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillöguna.

7.Fundaáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2012

Málsnúmer 2012010147Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundaáætlun stjórnarinnar til áramóta. Áætlað er að fundir verði haldnir 5. og 20. september, 4. og 25. október, 8. og 20. nóvember og 6. desember.

Fundi slitið - kl. 19:20.