Stjórn Akureyrarstofu

268. fundur 18. desember 2018 kl. 17:00 - 19:50 Strikið
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá

1.Upplýsingastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála lagði fram upplýsingastefnu Akureyrarbæjar til samþykktar.

Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlögð drög að upplýsingastefnu að viðbættum þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum og vísar henni til endanlegrar samþykktar hjá bæjarráði.

2.Listasafnið á Akureyri

Málsnúmer 2015060091Vakta málsnúmer

Lagðar fram rekstrar- og aðsóknartölur fyrir Listasafnið á Akureyri.

Hlynur Hallsson safnstjóri sat fundinn undir þessum lið.

3.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu lagði fram drög að ramma fyrir mótun safnastefnu.
Deildarstjóra Akureyrarstofu falið að vinna málið áfram og leggja fram verkáætlun vegna vinnu við gerð safnastefnu á seinni fundi stjórnar í janúarmánuði 2019.

4.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2018

Málsnúmer 2018080040Vakta málsnúmer

Lagt fram 10 mánaða rekstraruppgjör.

5.Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2019

Málsnúmer 2018080874Vakta málsnúmer

Farið yfir fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2019.

6.Starfshópur um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi

Málsnúmer 2018070485Vakta málsnúmer

Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir vinnu starfshóps um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi í bænum.

7.Stjórn Akureyrarstofu - fundaáætlun 2019

Málsnúmer 2018120145Vakta málsnúmer

Fundaáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrstu sex mánuði ársins 2019 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 19:50.