Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2019

Málsnúmer 2018080874

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 258. fundur - 30.08.2018

Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2019.

Stjórn Akureyrarstofu - 259. fundur - 06.09.2018

Áframhaldandi vinna við starfs- og fjárhagsáætlun.

Stjórn Akureyrarstofu - 260. fundur - 13.09.2018

Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2019.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir tillögur forstöðumanna að gjaldskrá vegna menningarmála og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

Stjórnin samþykkir jafnframt að fela starfsmönnum að stilla upp endanlegri starfs- og fjárhagsáætlun og leggja fyrir næsta fund með þeim áhersluatriðum sem rædd voru á fundinum.

Stjórn Akureyrarstofu - 261. fundur - 19.09.2018

Lokaumræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2019.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 og vísar henni til bæjarráðs.

Eva Hrund Einarsdóttir fulltrúi D-lista sat hjá við afgreiðslu málsins.

Stjórn Akureyrarstofu - 268. fundur - 18.12.2018

Farið yfir fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2019.