Stjórn Akureyrarstofu

267. fundur 06. desember 2018 kl. 14:00 - 16:33 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Fanney Stefánsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Hildar Guðmundsdóttur.

Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka inn á fundinn dagskrárliðinn Þrettándagleði Þórs, styrkbeiðni, málsnr. 2018120031. Var það samþykkt.

1.Upplýsingastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála kynnti drög að upplýsingastefnu.
Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir því að stefnan verði uppfærð miðað við þær athugasemdir sem komu fram á fundinum og verði lögð fyrir stjórnina á næsta fundi.

2.Kynning á þjónustu og starfsemi Akureyrarbæjar til bæjarbúa

Málsnúmer 2018110263Vakta málsnúmer

Til umræðu með hvaða hætti Akureyrarbær getur eflt kynningarstarfsemi á þjónustu og starfsemi bæjarins til bæjarbúa.

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum að móta markvissar tillögur með hvaða hætti er hægt að auka kynningu á þjónustu og starfsemi Akureyrarbæjar til bæjarbúa. Tillögurnar skulu liggja fyrir um miðjan janúar 2019.

3.Listasafnið á Akureyri

Málsnúmer 2015060091Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar rekstrar- og aðsóknartölur Listasafnsins.

4.Beiðni um samning við Menningarsjóð Akureyrar vegna leigu á húsnæði Mjólkurbúðarinnar, í húsi Listasafnsins

Málsnúmer 2018100438Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. október 2018 frá Myndlistarfélaginu á Akureyri, þar sem óskað er eftir að gerður verði samstarfssamningur við Menningarsjóð Akureyrar vegna leigu á húsnæði Mjólkurbúðarinnar, í húsi Listasafnsins.

Erindið var áður á dagskrá á fundi stjórnar Akureyrarstofu þann 1. nóvember sl.



Hilda Jana Gísladóttir bar upp vanhæfi sitt til að fjalla um þennan lið.

Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi borið upp til atkvæða og var það fellt.

Stjórn Akureyrarstofu getur ekki orðið við þeirri beiðni að gerður verði samningur um greiðslu húsaleigu en samþykkir styrk til starfsemi félagsins að upphæð kr. 200.000 vegna ársins 2018. Stjórnin bendir bréfritara á að hægt verður að sækja um samstarfssamning til Menningarsjóðs Akureyrar í ársbyrjun 2019.

5.Beiðni um endurnýjun samnings til ársloka 2021

Málsnúmer 2018090388Vakta málsnúmer

Lagður fram til samþykktar endurnýjaður samningur við Markaðsstofu Norðurlands.
Finnur Sigurðsson V-lista lagði fram eftirfarandi tillögu:

Legg til að upphæð samningsins verði lækkuð um 1 milljón til að nota í kynningarmál sem beint er sérstaklega að þjónustu á vegum Akureyrarbæjar.



Tillagan er felld með atkvæðum Hildu Jönu Gísladóttur S-lista, Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur L-lista, Sigfúsar Karlssonar B-lista og Evu Hrundar Einarsdóttur D lista.



Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samninginn með atkvæðum Hildu Jönu Gísladóttur S-lista, Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur L-lista, Sigfúsar Karlssonar B-lista og Evu Hrundar Einarsdóttur D lista og vísar honum til endanlegrar samþykktar hjá bæjarráði.

Finnur Sigurðsson V-lista greiðir atkvæði á móti.

6.Samfélagssvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2018110172Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að yfirvinna sé í samræmi við áætlanir.

7.Þrettándagleði Þórs 2019 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2018120031Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. desember 2018 frá Reimari Helgasyni f.h. Íþróttafélagsins Þórs þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 400.000 til árlegrar Þrettándagleði félagsins í byrjun næsta árs. Aðgangur að gleðinni er ókeypis en hún hefur verið haldin með stuðningi Akureyrarbæjar og fyrirtækja í bænum.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 250.000 v/Þrettándagleði félagsins.

Fundi slitið - kl. 16:33.