Kynning á þjónustu og starfsemi Akureyrarbæjar til bæjarbúa

Málsnúmer 2018110263

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 267. fundur - 06.12.2018

Til umræðu með hvaða hætti Akureyrarbær getur eflt kynningarstarfsemi á þjónustu og starfsemi bæjarins til bæjarbúa.

Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum að móta markvissar tillögur með hvaða hætti er hægt að auka kynningu á þjónustu og starfsemi Akureyrarbæjar til bæjarbúa. Tillögurnar skulu liggja fyrir um miðjan janúar 2019.