Stjórn Akureyrarstofu

263. fundur 18. október 2018 kl. 14:00 - 16:50 Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Finnur Sigurðsson
  • Kristján Blær Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Kristján Blær Sigurðsson D-lista mætti í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.

1.FabLab Akureyri

Málsnúmer 2014090260Vakta málsnúmer

Kynning á FabLab smiðjunni.

Jón Þór Sigurðsson verkefnastjóri FabLab smiðjunnar og Benedikt Barðason aðstoðarskólastjóri VMA tóku á móti stjórninni í húsakynnum FabLab smiðjunnar og kynntu starfsemina.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir góða kynningu og fagnar því metnaðarfulla starfi sem unnið er á vegum FabLab smiðjunnar og hvetur Akureyringa til að kynna sér það starf sem þar fer fram.

Beiðni um endurnýjun samnings verður tekin fyrir á næsta fundi.
Fundi var áframhaldið í Rósenborg kl. 15:10.

2.Viðburðasjóður Hofs og Samkomuhússins

Málsnúmer 2018080024Vakta málsnúmer

Lagt fram til samþykktar samkomulag og vinnureglur vegna listasjóðsins Verðandi sem er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar og Menningarfélagsins Hofs ses.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir samkomulagið og vinnureglurnar með þeim athugasemdum sem komu fram á fundinum.

3.Upplýsingastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer

Lagðar fram athugasemdir við drög að upplýsingastefnu frá ráðum Akureyrarbæjar og sviðsstjórum.
Stjórn Akureyrarstofu felur stýrihópnum sem hélt utan um vinnuna við gerð stefnunnar að vinna hana áfram m.t.t. þeirra athugasemda sem hafa komið fram. Jafnframt telur stjórnin það mikilvægt að samhliða þessu verði sérstaklega tekið á stefnu bæjarins um notkun samfélagsmiðla.

Stjórnin óskar eftir að vinnunni verði lokið fyrir miðjan nóvember nk.

4.Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands

Málsnúmer 2011060107Vakta málsnúmer

Skýrsla flugklasans dagsett 8. október 2018 lögð fram til kynningar.

5.Skipan fulltrúa Akureyrarbæjar í stjórn MAk

Málsnúmer 2018100235Vakta málsnúmer

Aðalfundur Menningarfélag Akureyrar verður haldinn í Hofi þriðjudaginn 30. október nk. kl. 20:00. Samkvæmt erindisbréfi stjórnar Akureyrarstofu skal stjórnin skipa einn aðalmann og einn varamann í stjórn MAk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir með atkvæðum Hildu Jönu Gísladóttur S-lista, Sigfúsar Karlssonar B-lista og Önnu Hildar Guðmundsdóttur L-lista að tilnefna Preben Jón Pétursson sem aðalmann og Brynhildi Pétursdóttur sem varamann.

Finnur Dúa Sigurðsson V-lista og Kristján Blær Sigurðsson D-lista sátu hjá og óska bókað:

Eðlilegra hefði verið að taka umræðu um hver væri skipaður fyrir hönd Akureyrarbæjar á fundi stjórnar Akureyrarstofu en svo var ekki gert.

6.Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Akureyri

Málsnúmer 2018020134Vakta málsnúmer

Atvinnu- og nýsköpunardagurinn var haldin þann 15. september sl.

Lagt fram minnisblað frá Nýsköpunarmiðstöð um hvernig til tókst með daginn.

Fundi slitið - kl. 16:50.