Stjórn Akureyrarstofu

238. fundur 12. október 2017 kl. 16:15 - 19:00 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Unnar Jónsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri
Dagskrá

1.Íbúakort

Málsnúmer 2017090124Vakta málsnúmer

Lagt fram álit bæjarlögmanns. Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Ingu Þöll fyrir vel unnið álit og góða kynningu. Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Eva Hrund Einarsdóttir vék af fundi kl. 17:00.

2.Listasafn - endurbætur

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Lagður fram listi vegna kaupa á stofnbúnaði fyrir Listasafnið.
Stjórn Akureyrarstofu gerir ekki athugasemdir við listann og vísar honum til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Fundarhlé gert kl. 17:10.
Fundi framhaldið kl. 17:20 á Minjasafninu.

3.Akureyrarstofa - samráðsfundir með forstöðumönnum menningarstofnana 2017

Málsnúmer 2017040024Vakta málsnúmer

Farið var í heimsókn á Minjasafnið þar sem Haraldur Þór Egilsson safnstjóri tók á móti stjórninni.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Haraldi Þór fyrir góðar móttökur og kynningu á starfsemi Minjasafnsins.

Fundi slitið - kl. 19:00.