Akureyrarstofa - samráðsfundir með forstöðumönnum menningarstofnana 2017

Málsnúmer 2017040024

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 229. fundur - 06.04.2017

Aðalbjörg Sigmarsdóttir héraðsskjalavörður og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður mættu á fundinn og kynntu starfsemi safnanna. Að kynningu lokinni var farin skoðunarferð um húsið og skoðuð aðstaða Héraðsskjalasafnsins annars vegar og Amtsbókasafnsins hins vegar.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar fyrir góðar móttökur og áhugaverðar kynningar.

Stjórn Akureyrarstofu - 238. fundur - 12.10.2017

Fundi framhaldið kl. 17:20 á Minjasafninu.
Farið var í heimsókn á Minjasafnið þar sem Haraldur Þór Egilsson safnstjóri tók á móti stjórninni.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Haraldi Þór fyrir góðar móttökur og kynningu á starfsemi Minjasafnsins.

Stjórn Akureyrarstofu - 240. fundur - 02.11.2017

Farið var í heimsókn á Iðnaðarsafnið þar sem Þorsteinn E. Arnórsson safnstjóri tók á móti stjórninni.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Þorsteini E. góðar móttökur og kynningu á starfsemi Iðnaðarsafnsins.