Skólanefnd

5. fundur 21. mars 2016 kl. 13:00 - 14:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Hanna Dögg Maronsdóttir
  • Preben Jón Pétursson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir fræðslustjóri ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Dagskrá
Dagný Þóra Baldursdóttir fulltrúi L-lista boðaði forföll. Kristján Ingimar Ragnarsson varamaður sat fundinn í hennar stað.
Sigurður Freyr Sigurðarsson fulltrúi grunnskólakennara boðaði forföll.

1.Hljóðvist í íþróttamannvirkjum

Málsnúmer 2015100029Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála hjá Akureyrarbæ og Steindór Ívar Ívarsson frá Fasteignum Akureyrarbæjar kynntu niðurstöður hljóðvistarmælinga í íþróttamannvirkjum.
Skólanefnd þakkar kynninguna.

2.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra kynnti gátlista um kynjaða fjárhagsáætlunargerð.

Skólanefnd þakkar kynninguna.

3.Skólaakstur fyrir grunnskóla Akureyrarbæjar - útboð 2016

Málsnúmer 2016030128Vakta málsnúmer

Samningar við SBA og Hópferðabíla Akureyrar renna út í lok skólaársins 2015-2016.

Skólanefnd samþykkir að bjóða út skólaakstur og felur fræðslustjóra að sjá til þess að útboðsgögn verði útbúin.

4.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2015-2019

Málsnúmer 2015100143Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2015-2019.

5.Evrópsk úttekt á menntun í skóla án aðgreiningar

Málsnúmer 2016030130Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi sem barst í tölvupósti 9. mars 2016 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um að Akureyrarbær taki þátt í evrópskri úttekt á menntun í skóla án aðgreiningar.

Óskað er eftir að Akureyrarbær verði þátttakandi í úttektinni.

6.Auglýsing á stöðu skólastjóra Naustaskóla

Málsnúmer 2016030138Vakta málsnúmer

Skólanefnd felur fræðslustjóra að auglýsa stöðuna.

7.Hlíðaból - uppsögn samnings

Málsnúmer 2016030139Vakta málsnúmer

Uppsögn á rekstrarstyrks samningi við Hvítasunnusöfnuðinn vegna leikskólans Hlíðabóls.
Skólanefnd samþykkir að segja upp rekstrarstyrks samningi við rekstraraðila vegna leikskólans Hlíðabóls. Starfseminni lýkur því við sumarlokun sumarið 2017, 7. júlí.

8.Búnaðarkaup fyrir skólana árið 2016

Málsnúmer 2016030144Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að skiptingu fjármagns til búnaðarkaupa fyrir leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2016.
Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna kaupanna.

Fundi slitið - kl. 14:40.