Samfélags- og mannréttindaráð

116. fundur 07. nóvember 2012 kl. 17:00 - 19:04 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Hlín Bolladóttir formaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • María Hólmfríður Marinósdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri - rannsóknir

Málsnúmer 2012110007Vakta málsnúmer

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir félagsfræðingur við Rannsóknasetur forvarna við Háskólann á Akureyri kynnti rannsóknir um vímuefnaneyslu unglinga og heilsu og lífskjör skólanema.
Gréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista kom til fundar kl. 17:20.

2.Forvarnamál - 2012-2013

Málsnúmer 2012040062Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir forvarnafræðslu sem boðið verður upp á í grunnskólum bæjarins í vetur.
Gréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

3.Jafnréttisstofa - beiðni um afhendingu á skýrslu um stöðu og þróun jafnréttismála

Málsnúmer 2012070136Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla um stöðu verkefna í Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar. Skýrslan hefur verið send til Jafnréttisstofu.

4.Kynjuð fjárhagsáætlanagerð

Málsnúmer 2011030090Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhagsáætlanagerð sem snýst um úttekt á handverksmiðstöðinni Punktinum.

Samfélags- og mannréttindaráð samþykkir framlagða tillögu.

5.Æskulýðs- og tómstundastarf - viðurkenningar

Málsnúmer 2012090258Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um veitingu viðurkenninga til þeirra sem skara fram úr í æskulýðs- og tómstundastarfi.

6.16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2012

Málsnúmer 2012090256Vakta málsnúmer

Dagana 25. nóvember til 10. desember nk. mun samfélags- og mannréttindaráð ásamt fleirum taka þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Yfirskrift átaksins er "heimilisfriður - heimsfriður". Drög að dagskrá kynnt.

7.Þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti - dagur gegn einelti 8. nóvember

Málsnúmer 2011100100Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dags. 1. nóvember 2012 frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á degi gegn einelti 8. nóvember og fólk hvatt til að undirrita þjóðarsáttmála á heimasíðunni www.gegneinelti.is.

Samfélags- og mannréttindaráð hvetur bæjarbúa til að undirrita þjóðarsáttmálann.

Fundi slitið - kl. 19:04.