Samfélags- og mannréttindaráð

80. fundur 02. febrúar 2011 kl. 16:45 - 18:20 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson varaformaður
  • Brynjar Davíðsson
  • Heimir Haraldsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðlaug Kristinsdóttir
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Menntasmiðja kvenna 2008-2012 - samningur við Starfsendurhæfingu Norðurlands

Málsnúmer 2008080086Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræður um Menntasmiðju kvenna.
Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar sat fundinn undir þessum lið.
Anna Hildur Guðmundsdóttir mætti til fundar kl. 17:15.

2.Unglingadansleikir

Málsnúmer 2011010099Vakta málsnúmer

Unnið að gerð reglna vegna unglingadansleikja.
Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn, Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála og Gréta Kristjánsdóttir umsjónarmaður forvarna sátu fundinn undir þessum lið.

3.Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011

Málsnúmer 2010090136Vakta málsnúmer

Unnið að starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs fyrir árið 2011.

4.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2012-2014

Málsnúmer 2011010090Vakta málsnúmer

Unnið að gerð þriggja ára áætlunar fyrir þá málaflokka sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð.

5.100 ár liðin frá kosningu fyrstu konu í bæjarstjórn Akureyrar

Málsnúmer 2011010047Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 20. janúar 2011:
Erindi dags. 6. janúar 2011 frá Kristínu Ástgeirsdóttur jafnréttisstýru Jafnréttisstofu þar sem bæjarstjórn Akureyrar er bent á þá sögulegu staðreynd að á þessu ári verða 100 ár liðin frá því að kona var fyrst kjörin í bæjarstjórn Akureyrar. Bæjarráð vísar málinu til samfélags- og mannréttindaráðs.

Samfélags- og mannréttindaráð þakkar Kristínu Ástgeirsdóttur fyrir góða ábendingu og mun leita leiða til að minnast tímamótanna.

Fundi slitið - kl. 18:20.