Öldungaráð

30. fundur 13. september 2023 kl. 13:00 - 14:55 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson rekstrarstjóri ritaði fundargerð
  • Halla Birgisdóttir Ottesen forstöðumaður tómstundamála
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá

1.Mannréttindastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2023090495Vakta málsnúmer

Sigrún Björk Sigurðardóttir mannauðsráðgjafi á mannauðssviði Akureyrarbæjar kynnti Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.
Öldungaráð þakkar Sigrúnu Björk fyrir kynninguna.

Hægt er að kynna sér Mannréttindastefnuna á https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/reglur-og-samthykktir/jafnrettis-og-fjolskyldumal/mannrettindastefna-akureyrarbaejar-2023-2027

2.Hádegismatur fyrir eldra fólk í Birtu og Sölku

Málsnúmer 2023050574Vakta málsnúmer

Halla Birgisdóttir forstöðumaður tómstundamála sagði frá stöðu á hádegismatnum í Birtu og Sölku.
Öldungaráð lýsir sérstakri ánægju með hve vel hefur tekist til með hádegismatinn í Sölku og Birtu undanfarið. Ljóst er að félagslegi þáttur þess að koma saman og borða hefur mikil og góð áhrif á líðan og heilsufar eldra fólks.

Öldungaráð skorar á fræðslu- og lýðheilsuráð að halda áfram að bjóða upp á máltíðir á niðurgreiddu verði til eldra fólks og hvetur ráðið til þess að bjóða upp á máltíðir fimm daga vikunnar, eins og flest önnur sambærileg sveitarfélög gera.

3.Stefna um íbúasamráð

Málsnúmer 2022041947Vakta málsnúmer

Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar kynnti vinnu við stefnu um íbúasamráð.
Öldungaráð þakkar Jóni Þór fyrir kynninguna.

4.Starfsáætlun öldungaráðs 2023

Málsnúmer 2022120098Vakta málsnúmer

Starfsáætlun öldungaráðs lögð fram til umfjöllunar.
Frestað til næsta fundar.

Fundi slitið - kl. 14:55.