Auglýsingar starfa

Málsnúmer 2016120016

Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd - 5. fundur - 07.12.2016

Umfjöllun um hvernig standa skal að ráðningum í ný störf millistjórnenda sem verða til í kjölfar skiplagsbreytinga sem taka gildi 1. janúar 2017.

Bæjarráð - 3535. fundur - 15.12.2016

Rætt um fyrirkomulag ráðninga millistjórnenda á ný svið Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir að kalla til auka bæjarráðsfundar mánudaginn 19. desember kl. 08:00 til að ræða málið frekar.

Bæjarráð - 3536. fundur - 19.12.2016

12. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 15. desember 2016:

Rætt um fyrirkomulag ráðninga millistjórnenda á ný svið Akureyrarbæjar.

Bæjarráð samþykkir að kalla til auka bæjarráðsfundar mánudaginn 19. desember kl. 08:00 til að ræða málið frekar.
Gunnar Gíslason D-lista óskar bókað:

Ég legg til að sá aðgerðarhópur sem skipaður var af bæjaráði til að vinna að innleiðingu stjórnsýslubreytinga sem samþykktar hafa verið, verði lagður niður. Það er búið að ráða sviðsstjóra og það er þeirra hlutverk í samráði við sína starfsmenn og bæjarstjóra að skipa málum hver á sínu sviði. Ef fram koma tillögur um breytingu á skipuriti sviða í þeirri vinnu verða þær tillögur lagðar fyrir viðkomandi fagnefnd og stjórnsýslunefnd.



Guðmundur Baldvin Guðmundsson B-lista, Matthías Rögnvaldsson L-lista, Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista og Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista lögðu fram tillögu um að ekki yrði tekin afstaða til tillögu Gunnars á þessum fundi.

Tillagan var samþykkt með atkvæðum meirihluta bæjarráðs.

Gunnar Gíslason D-lista greiddi atkvæði á móti tillögunni og Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá.

Bæjarráð - 3537. fundur - 22.12.2016

Fjármálasvið.

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri kynnti tillögur um skipulag fjársýslusviðs.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur.
Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista mætti til fundar kl. 8:35.

Bæjarráð - 3537. fundur - 22.12.2016

Stjórnsýslusvið.

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri kynnti tillögur um skipulag stjórnsýslusviðs.

Einnig lagði hún fram tillögu um að reglur Akureyrarbæjar um greiðslu stjórnendaálags verði endurskoðaðar m.t.t. stjórnsýslubreytinga sem taka gildi um áramót.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur um skipulag stjórnsýslusviðs.

Preben Jón Pétursson Æ-lista óskar bókað: Ég tel að það eigi að auglýsa allar lausar stöður stjórnenda.

Bæjarráð samþykkir að fela kjarasamninganefnd að vinna tillögu að endurskoðuðum reglum um greiðslu stjórnendaálags hjá Akureyrarbæ. Tillaga að endurskoðuðum reglum skal lögð fram til afgreiðslu á fundi bæjarráðs 12. janúar nk.

Bæjarráð - 3541. fundur - 26.01.2017

Farið yfir stöðu stjórnsýslubreytinganna hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að millistjórnendur á fjársýslu- og stjórnsýslusviði verði skilgreindir forstöðumenn viðkomandi deilda vegna ábendingar kjarasamninganefndar.

Kjarasamninganefnd - 4. fundur - 07.02.2017

4. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 26. janúar 2017:

Farið yfir stöðu stjórnsýslubreytinganna hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir að millistjórnendur á fjársýslu- og stjórnsýslusviði verði skilgreindir forstöðumenn viðkomandi deilda vegna ábendingar kjarasamninganefndar.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjaráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns upplýsinga- og þjónustudeildar á stjórnsýslusviði.

Bæjarráð - 3543. fundur - 09.02.2017

1. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 7. febrúar 2017:

4. liður í fundargerð bæjarráðs dagsett 26. janúar 2017:

Farið yfir stöðu stjórnsýslubreytinganna hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir að millistjórnendur á fjársýslu- og stjórnsýslusviði verði skilgreindir forstöðumenn viðkomandi deilda vegna ábendingar kjarasamninganefndar.

Kjarasamninganefnd leggur til við bæjaráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns upplýsinga- og þjónustudeildar á stjórnsýslusviði.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar um að greitt verði stjórnendaálag fyrir nýtt starf forstöðumanns upplýsinga- og þjónustudeildar á stjórnsýslusviði samkvæmt reglum um stjórnendaálag.