Kjarasamninganefnd

5. fundur 07. desember 2016 kl. 14:00 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
Dagskrá
Einnig sátu fundinn bæjarfulltrúarnir Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista og Matthías Rögnvaldsson L-lista.

1.Reglur um réttindi, skyldur og launakjör embættismanna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2016110076Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs 1. desember 2017 var bókað svohljóðandi:

2016110076

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 24. nóvember 2016:

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 17. nóvember sl.

Lögð fram drög að breytingum á reglum um réttindi, skyldur og launakjör embættismanna Akureyrarbæjar.

Bæjarráð samþykkir reglurnar og felur bæjarstjóra og kjarasamninganefnd að koma þeim til framkvæmda.
Kjarasamninganefnd og bæjarstjóri samþykkja að reglurnar komi til framkvæmda.

2.Skipurit 1. janúar 2017

Málsnúmer 2016120015Vakta málsnúmer

Umfjöllun um breytingar á skipuriti Akureyrarbæjar 1. janúar 2017 og launaröðun starfa stjórnenda.

3.Auglýsingar starfa

Málsnúmer 2016120016Vakta málsnúmer

Umfjöllun um hvernig standa skal að ráðningum í ný störf millistjórnenda sem verða til í kjölfar skiplagsbreytinga sem taka gildi 1. janúar 2017.

4.Stjórnendaálag, endurskoðun verklagsreglna

Málsnúmer 2016050132Vakta málsnúmer

Umfjöllun um núgildandi reglur Akureyrarbæjar um stjórnendaálag og endurskoðun þeirra.

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fund nefndarinnar undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað.

Fundi slitið - kl. 15:45.