Íþróttaráð

83. fundur 02. desember 2010 kl. 14:00 - 15:30 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Þóroddur Hjaltalín
  • Erlingur Kristjánsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
Starfsmenn
  • Kristinn H. Svanbergsson fundarritari
Dagskrá

1.Forvarnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2007090104Vakta málsnúmer

Gréta Kristjánsdóttir forvarnafulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti aðgerðaáætlun forvarnastefnu Akueyrarbæjar.

Íþróttaráð þakkar Grétu fyrir kynninguna.

2.Fjárhagsáætlun 2011 - íþróttaráð

Málsnúmer 2010080052Vakta málsnúmer

Unnið að hagræðingu í rekstri íþróttadeildar fyrir starfsárið 2011.

3.Skíðasvæðin við Eyjafjörð - sameiginleg árskort

Málsnúmer 2010120010Vakta málsnúmer

Erindi dags. 1. desember 2010 frá Stefaníu Steinsdóttur f.h. Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar þar sem óskað er eftir því að Akureyrarbær verði með í sameiginlegu árskorti fyrir skíðasvæðin við Eyjafjörð ásamt Dalvík, Siglufirði og Ólafsfirði.

Íþróttaráð samþykkir samvinnu við önnur skíðasvæði á Eyjafjarðarsvæðinu og felur framkvæmdastjóra íþróttadeildar og forstöðumanni Hlíðarfjalls að ljúka málinu.

Fundi slitið - kl. 15:30.