Framkvæmdaráð

299. fundur 16. janúar 2015 kl. 08:15 - 10:45 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Dagskrá
Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi V-lista mætti ekki á fundinn og ekki varamaður hans.

1.Sjúkratryggingar Íslands - sjúkraflutningar 2014 - framlenging á samningi

Málsnúmer 2014050035Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mætti á fund framkvæmdaráðs undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu mála vegna samninga við SÍ.
Framkvæmdaráð þakkar bæjarstjóra greinargóða kynningu.

2.Umhverfisátak

Málsnúmer 2012080082Vakta málsnúmer

Staða áætlunar fyrir árið 2014 kynnt og farið yfir með hvaða hætti framkvæmd umhverfisátaksins fyrir árið 2015 verði höfð.
Framkvæmdaráð þakkar kynninguna.

3.Fjárhagsáætlun 2015 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2014080067Vakta málsnúmer

Farið yfir framkvæmdaáætlun ársins 2015 og kynntar hugmyndir af Drottningarbrautarstígnum ásamt kostnaðaráætlun.
Framkvæmdaráð felur starfsmönnum áframhaldandi vinnu í samræmi við umræður á fundinum.

4.Kæra vegna útboðsmála um snjómokstur og hálkuvarnir

Málsnúmer 2014110205Vakta málsnúmer

Lögð fram og kynnt greinargerð Akureyrarbæjar vegna kæru á útboði snjómoksturs og hálkuvarna.
Framkvæmdaráð þakkar kynninguna.

Fundi slitið - kl. 10:45.