Framkvæmdaráð

255. fundur 17. ágúst 2012 kl. 08:15 - 10:20 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Bjarni Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Jón Ingi Cæsarsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála
Dagskrá

1.Samgönguáætlun - tillögur

Málsnúmer 2012050232Vakta málsnúmer

Kynntar hugmyndir að samgöngustefnu fyrir Akureyrarbæ.
Rúna Ásmundsdóttir verkfræðingur hjá Mannviti mætti á fundinn undir þessum lið.

Framkvæmdaráð þakkar Rúnu Ásmundsdóttur fyrir kynninguna.

2.Fjárhagsáætlun 2012 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2012080022Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstur deildanna fyrstu 6 mánuði ársins 2012 og staðan tekin á framkvæmdum ársins.

3.Fráveita - útboð

Málsnúmer 2011120044Vakta málsnúmer

Kynnt var niðurstaða útboðsins "Útrás í Sandgerðisbót"

Framkvæmdaráð samþykkir að fela Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi að ræða við lægstbjóðanda.

4.Starfsáætlun framkvæmdaráðs - 2011-2014

Málsnúmer 2011010021Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar endurskoðuð starfsáætlun í tengslum við fjárhagsáætlunargerð ársins 2013.

5.Fjárhagsáætlun 2013 - framkvæmdaráð

Málsnúmer 2012080021Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tillögur bæjarráðs frá 14. júní sl. um forsendur fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar 2013 og tímaáætlun og rammar fyrir þá málaflokka sem falla undir framkvæmdaráð. Óskir um athugasemdir þurfa að berast fyrir 18. ágúst nk.

Fundi slitið - kl. 10:20.