Fræðsluráð

57. fundur 04. október 2021 kl. 13:30 - 15:30 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Þorlákur Axel Jónsson varaformaður
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir varamaður foreldra leikskólabarna
  • Ísabella Sól Ingvarsdóttir varamaður fulltrúa ungmennaráðs
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Jóhanna María Agnarsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Kolbrún Sigurgeirsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Marthen Elvar Veigarsson Olsen varamaður fulltrúa leikskólakennara
  • Snjólaug Jónína Brjánsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Siguróli Magni Sigurðsson B-lista mætti í forföllum Ingibjargar Ólafar Isaksen.

1.Skýrsla MSHA um sérúrræði í grunnskólum Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2021091604Vakta málsnúmer

Að beiðni fræðslusviðs Akureyrarbæjar vann Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri (MSHA) skýrslu um sérúrræði í grunnskólum bæjarins. Skýrslan var lögð fram til kynningar. Gunnar Gíslason forstöðumaður MSHA og Rúnar Sigþórsson prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri komu á fundinn og gerðu grein fyrir skýrslunni.
Fræðsluráð tók efni skýrslunnar til umræðu og lýsir yfir ánægju sinni með hana og vinnu tengda henni.
Ísabella Sól Ingvarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs kom til fundar kl. 14:00

2.Leikskólar - starfsáætlanir 2014-2022

Málsnúmer 2018040329Vakta málsnúmer

Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla gerði grein fyrir starfsáætlunum leikskóla 2021-2022 fyrir Hólmasól og Hríseyjarskóla og lagði fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfesti samhljóða starfsáætlanir sem lagðar voru fram.

3.Staðfesting á skólasókn

Málsnúmer 2018100121Vakta málsnúmer

Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs skv. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er „að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu."

Lögð var fram greinargerð um skólasókn barna á grunnskólaaldri á Akureyri 1. október 2021.
Fræðsluráð staðfesti samhljóða framlagða greinargerð.

4.Kostnaðarauki vegna móttöku flóttamanna í skólum - Ósk um viðauka

Málsnúmer 2021090845Vakta málsnúmer

Seinni umræða um ósk um viðauka vegna móttöku flóttamanna í leik- og grunnskólum.
Fræðsluráð samþykkir erindið samhljóða og vísar því til bæjarráðs.

5.Gjaldskrá fræðslusviðs 2022

Málsnúmer 2021090843Vakta málsnúmer

Tillögur að gjaldskrám fræðslusviðs fyrir árið 2022 lagðar fram til umræðu og kynningar.
Jóhann Gunnarsson fulltrúi grunnskólabarna vék af fundi kl. 15:00.

Fundi slitið - kl. 15:30.