Gjaldskrá fræðslusviðs 2022

Málsnúmer 2021090843

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 56. fundur - 20.09.2021

Tillögur að gjaldskrám fræðslusviðs fyrir árið 2022 lagðar fram til kynningar.

Fræðsluráð - 57. fundur - 04.10.2021

Tillögur að gjaldskrám fræðslusviðs fyrir árið 2022 lagðar fram til umræðu og kynningar.
Jóhann Gunnarsson fulltrúi grunnskólabarna vék af fundi kl. 15:00.

Fræðsluráð - 58. fundur - 18.10.2021

Tillögur að gjaldskrá fræðslusviðs fyrir árið 2022 lagðar fram til afgreiðslu.
Gengið var til atkvæðagreiðslu um gjaldskrártillögur fræðslusviðs fyrir árið 2022.

- Gjaldskrá Tónlistarskólans á Akureyri var samþykkt samhljóða.

- Gjaldskrá frístundar var samþykkt samhljóða.

- Gjaldskrá mötuneyta var samþykkt samhljóða.

- Gjaldskrá leikskóla

Tillaga II var felld á jöfnum atkvæðum: Þorlákur Axel Jónsson S-lista og Þórhallur Harðarson D-lista greiddu atkvæði með tillögunni en Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir L-lista og Siguróli Magni Sigurðsson B-lista greiddu atkvæði gegn tillögunni. Hlynur Jóhannsson M-lista situr hjá.

Tillaga III var samþykkt. Siguróli Magni Sigurðsson B-lista og Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir L-lista greiddu atkvæði með tillögunni. Hlynur Jóhannsson M-lista, Siguróli Magni Sigurðsson B-lista, Þorlákur Axel Jónsson S-lista og Þórhallur Harðarson D-lista sitja hjá.

Eftirfarandi bókun var lögð fram:

Þorlákur Axel Jónsson S-lista og Þórhallur Harðarson D-lista telja rétt að ganga út frá tillögu II um gjaldskrá leikskóla, að sérstakt 10% álag sem nú er lagt á dvöl yngstu barnanna falli niður þannig að eitt gjald verði fyrir öll börn óháð aldri þeirra. Almennt hækki gjald fyrir dvalartíma um 6% enda samsvarar sú hækkun 4% hækkun á gjaldskránni í heild þegar reiknað hefur verið með lækkun á gjaldi yngstu barnanna. Fæðisgjald hækki um 4%. Jafnframt verði foreldrum gert auðveldara að lækka mánaðargjaldið með því að skrá með fyrirvara þá vistunartíma sem þeir hyggjast ekki nota í hverjum mánuði. Álag á dvalartíma umfram 8 klst. á dag verði óbreytt.

- Gjaldskrá fyrir leigu á húsnæði grunnskólanna var felld með atkvæðum Siguróla Magna Sigurðssonar B-lista og Hlyns Jóhannssonar M-lista. Þórhallur Harðarson D-lista situr hjá. Þorlákur Axel Jónsson S-lista og Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir L-lista greiddu atkvæði með tillögunni.

Siguróli Magni Sigurðsson B-lista lét bóka eftirfarandi:

Enginn hvati er fyrir skóla að leigja húsnæði sitt undir gistingu til íþróttafélaga á Akureyri. Að lækka afslátt íþróttafélaga um 10% mun ekki auka þann hvata heldur aðeins koma niður á íþróttafélögunum, sem nú þegar standa í ströngu að fjármagna sig. Auka ætti hvata grunnskóla annars staðar frá í kerfinu til þess að þeir séu liðlegri að leigja sitt húsnæði til íþróttafélaganna, sem koma með alls konar ferðamenn í bæinn tengda íþróttum og íþróttamótum en ekki með því að auka kostnað á íþróttafélögin.


Tillögunum er vísað til bæjarráðs.