Fræðsluráð

36. fundur 07. september 2020 kl. 13:30 - 15:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Valgerður S Bjarnadóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Inda Björk Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Linda Rós Rögnvaldsdóttir varamaður grunnskólakennara
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar óskaði formaður fræðsluráðs afbrigða frá útsendri dagskrá um að setja kynningu á mannréttindastefnu Akureyrarbæjar sem 2. lið á dagskrá. Óskin var samþykkt samhljóða.
Valgerður S. Bjarnadóttir S-lista mætti í forföllum Þorláks A. Jónssonar.

1.Börn af erlendum uppruna - skýrsla

Málsnúmer 2020090083Vakta málsnúmer

Helga Hauksdóttir kennsluráðgjafi kom á fundinn og kynnti stöðuskýrslu fyrir skólaárið 2019-2020.

2.Mannréttindastefna 2020-2023

Málsnúmer 2019030417Vakta málsnúmer

Bryndís Elfa Valdemarsdóttir jafnréttisráðgjafi á samfélagssviði Akureyrarbæjar kom á fundinn og kynnti mannréttindastefnu bæjarins.

3.Lýðheilsa ungs fólks á Akureyri

Málsnúmer 2018120001Vakta málsnúmer

Niðurstöður á rannsókninni Ungt fólk 2020 lagðar fram til kynningar.

4.Yfirlit um yfirvinnu stofnana á fræðslusviði

Málsnúmer 2018100120Vakta málsnúmer

Staða yfirvinnu á fræðslusviði frá janúar til ágúst 2020 lögð fram til kynningar.
Atli Þ. Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna kom til fundar kl. 14.25.

5.Oddeyrarskóli - eftirfylgni með innleiðingu laga nr. 91 2008

Málsnúmer 2015080082Vakta málsnúmer

Mennta- og menningarmálaráðuneytið óskaði eftir upplýsingum um framkvæmd umbóta í Oddeyrarskóla sem áætlaðar voru í kjölfar ytra mats á skólanum skólaárið 2017-2018.
Skólastjóri Oddeyrarskóla gerði grein fyrir framkvæmdinni.

Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að svara erindinu.

Fundi slitið - kl. 15:00.